Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 88

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 88
88 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ MINNING Pétur Sigurðsson Fæddur 10. júní 1911 — Dáinn 8. febrúar 1998 Landhelgisgæsla íslands var stofnuð upp úr árinu 1920, en frá ár- inu 1930 til ársins 1952 höfðu Skipaútgerð rfkisins og Landhelgis- gæsla íslands sameiginlega stjórn er varðaði daglegan rekstur varðskip- anna, en yfirstjórn var frá upphafi og er enn í dag í höndum dóms- málaráðherra. Árið 1952 var Land- helgisgæslunni fenginn sérstakur stjórnandi og hún stjórnunarlega að- skilin frá Skipaútgerð ríkisins. Pétur Sigurðsson, sjóliðsforingi frá Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, var ráðinn forstjóri Landhelgisgæslunn- ar. Starfsmenn Gæslunnar tóku hon- um fagnandi og almenningur sá að hér var stigið mikið gæfuspor. Pétur Sigurðsson hafði staðgóða þekkingu á þessum málum og þar að auki góða menntun, sem hæfði þessu hlutverki. Hann hafði sinnt störfum bæði í danska sjóhernum og íslensku Landhelgisgæslunni. Pétur hafði auk þess, sem að framan getur, starfað við sjómælingar, sem var og er veigamikill þáttur í störf- um Landhelgisgæslunnar. Hér var mikið verk að vinna og nýjar leiðir að fara. í frumskógi rík- isfjármála og ríkisafskipta var og er villugjarnt. Pétur skildi hlutverk sitt rétt frá byrjun og var tilbúinn að axla þá ábyrgð sem starfinu fylgdi. Öll mál voru brotin til mergjar en ekki ýtt til hliðar og öðrum ætluð. Framsýni og fyrirhyggja einkenndu öll hans stjórntök enda árangurinn eftir því. Eins og öllum er ljóst, sem til þekkja, er starf forstjóra Landhelg- isgæslunnar bæði ábyrgðarmikið og annasamt. Öll mál fengu ítarlega umfjöllun og voru grannskoðuð og ráða leitað hjá færustu sérfræðing- um, áður en lokákvörðun var tekin. Pétur Sigurðsson stóð aldrei ráð- þrota gagnvart neinu verkefni, og taldi aldrei eftir sér að leggja nótt við dag í starfi sínu og var alltaf reiðubúinn að ræða við starfsmenn Landhelgisgæslunnar á hvaða tíma sólarhrings sem var. í stjórnartíð Péturs var fiskveiði- landhelgin færð út þrisvar sinnum, í 12, 50 og 200 sjómflur. Allar þessar útfærslur kölluðu á þrotlausa vinnu fyrir forstjóra Landhelgisgæslunnar, sem og aðra starfsmenn hennar. Þá voru varðskipin Albert, Óðinn, Ægir og Týr smíðuð í forstjóratíð hans. Pét- ur var óþreytandi í leit að nýjum hug- myndum varðandi smíði þessara skipa. Hann reyndi með öllum ráðum að tryggja öryggi áhafnanna og bæta sjóhæfni skipanna. Reynsla fyrri ára var yfirfærð frá einni nýsmíði til ann- arrar. Öll þessi vinna skilaði betri og traustari skipum. Eigi verður svo skilið við þessa upptalningu, að ekki verði minnst á klippurnar landsfrægu. Segja má að hafi einhver einn hlutur skipt sköpum í vörslu fiskveiðilandhelginnar, þá voru það klippurnar. Pétur Sigurðsson átti mikinn heiður að þeirri uppfinn- ingu ásamt öðrum en að baki hennar lágu margar andvökunætur og ómæld vinna, oft eftir annasöm dagleg störf. Að frumkvæði Péturs Sigurðssonar var kennsla undir skipstjórapróf á varðskipum rfldsins tekin upp í Stýri- mannaskóla íslands árið 1953 og fyrstu nemendurnir brottskráðir um vorið sama ár. Pétur beitti sér alla tíð fyrir aukinni menntun starfs- manna og þjálfun, þótt fé til slíkra mála væri af skornum skammti. Árið 1955 eignaðist Landhelgis- gæslan sína fyrstu flugvél, Katalínu- flugbátinn TF-RÁN. Reyndar hafði Pétur látið nota leiguflugvélar til gæslustarfa strax fyrstu árin eftir að liann tók við stjórn Landhelgisgæsl- unnar. Uppbygging flugflotans var honum einkar hugstæð. Hann sá strax hvernig flugvélar og varðskip gátu unnið saman að vörslu fisk- veiðilandhelginnar. Pétur Sigurðsson stóð aldrei ráð- þrota frammi fyrir neinu verkefni. Lausn varð að finnast, lausn sem treysti innviði Landhelgisgæslunnar og tryggði framþróun hennar. Þann 1. september 1981 lét Pétur Sigurðsson af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslunnar eftir 29 ára farsælt starf. Margs er að minnast frá þessu viðburðaríka tímabili. I stuttri minningar- og kveðjugrein er ekki hægt að nefna nema fátt eitt, þegar fjölhæfur forystumaður á í hlut. Mörgum er í minni hin létta og frjálslega framkoma Péturs og ekki síður skemmtilegar og fræðandi frá- sagnir hans af mönnum og málefn- um. Hann hafði mjög góð tök á að umgangast starfsmenn Landhelgis- gæslunnar og leysti vel og farsæl- lega úr þeim málum sem vörðuðu þá. Fyrrverandi og núverandi starfs- menn Landhelgisgæslunnar þakka Pétri Sigurðssyni fyrir samfylgdina í blíðu og stríðu. Við sendum eftir- lifandi eiginkonu hans, frú Ebbu Sigurðsson og tveimur sonum þeirra, innilegar samúðarkveðjur. F.h. ÖLDUNGARÁÐSINS félags fyrrum starfsmanna Landhelgisgœslu Islands. Ámi E. Valdimarsson ritari.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.