Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 123

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 123
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 123 Hálfdan Henrysson stýrimaður I minningu látinna félaga Á undanförnum áruni hefur rækilega komið í ljós hversu þyrlur, útbúnar til björgunarstarfa, eru ötlug björgunartæki. Hvert björg- unarafrekið á fætur öðru hefur ver- ið unnið og ljóst að margir, bæði sjómenn og aðrir, geta þakkað þess- um frábæru tækjum björgun sína. í mörgum tilvikuni hefði ekki með öðru móti verið hægt að bjarga fólki. Áhafnir þyrlanna hafa sýnt stórkostlegan árangur og færni við björgunarstörf sín. Saga þeirra hef- ur þó ekki verið áfallalaus hérlend- is sem annars staðar og Islendingar þurft að færa miklar fórnir við notkun þeirra. Hér á eftir fer stutt frásögn af björgunarflugi sem farið var við erfið skilyrði. Þá kom fram hve góð þjálfun er nauðsynleg, svo og góður búnaður, við slíkar aðstæður. Ekki hafði á þeim tíma fengist mikil reynsla af þyrlu- flugi við slæm ísingarskilyrði, þó að sjálfsögðu væri ísingarhætta þekkt frá venjulegum flugvélum og ýmis bún- aður um borð í þeim til að varna slíku. Lengi vel var lítill búnaður um borð í þyrlum til varnar ísingu, þó sem betur fer hafi á seinni árum verið bætt úr því að einhverju leyti. Klæðnaður áhafnar var heldur ekki góður, en skilningur á notkun góðs búnaðar fór vaxandi. Lengi framan af voru áhafn- ir í björgunarflugi aðeins klæddar venjulegum fötum án sérstaks búnað- ar eins og nú þykir sjálfsagt og eðli- legt. íslendingar höfðu haft kynni af fullkomnum búnaði áhafna björgun- arflugvéla hjá björgunarsveit varnar- liðsins, en fjármagn til kaupa á slíkum búnaði af skornum skammti og skiln- ingur á nauðsyn hans kannski heldur ekki jafnvel til staðar. Varnarliðsmenn höfðu ennfremur fram yfir Islendinga að hafa í þyrluáhöfnum sínum lækna eða sérþjálfaða sjúkraliða til að hlynna að sjúkum og slösuðum. Til- raunir með slíkt höfðu þó hafist fyrir allmörgum árum en verið hætt af ein- hverjum ástæðum. Þáttur Ólafs Ingi- björnssonar læknis var merkilegt framtak fullhugans og vonandi verður því framtaki hans og fleiru gerð verð- ug skil síðar. Þann 29. mars 1983 var veður í Reykjavík hryssingslegt og kalt. Vindur var allhvass af NA- og gekk á með dimmum éljum. Upp úr hádegi bárust þau boð til stjórnstöðvar Land- helgisgæslunnar frá danska herskip- inu Fyllu sem statt var í Víkurál djúpt V-af Bjargtöngum, að skipið hefði fengið á sig brotsjó, gluggar í brú hefðu brotnað og einn skipsmaður skorist illa á augum og nefi vegna glerbrota úr brúargluggum skipsins. Tilkynningunni fylgdi veðurlýsing sem ekki var árennileg til björgunar- ilugs eins og á stóð, veður NA-9-10 vindstig og snjókoma. Boðunum var komið til flugmanna og áhafnar á björgunarþyrlunni, sem var þá TF-RÁN, nýleg og fullkomin þyrla af gerðinni Sikorsky S-76. Spi- rit. Haft var samband við Veðurstof- una og óskað upplýsinga um veðurút- lit og horfur. Upplýsingarnar frá Veð- urstofunni gáfu ekki vonir um batn- andi veður og flugi frestað þar til ná- kvæmari upplýsingar um ástand sjúk- lingsins bærust. Kl. um 1540 barst ósk frá skipinu um að þyrla kæmi því til aðstoðar, þar sem dragast myndi verulega vegna veðurs að koma sjúklingnum undir læknishendur. Óttast var að sjón
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.