Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 134

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 134
134 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Bjargey Pétursdóttir, Sojfía kona Jóhanns og Daníel Sigmundsson. börn, fimmtán til sautján ára gömul; öll úr fátækrahverfum borgarinnar. Þau komu nú öll holdvot austan úr Barðsvík eftir fimm stunda göngu í bölvuðu suddaveðri. Hjúin spurðu hvort þau mættu tjalda nálægt húsinu. Tjalda? hváði ég undrandi. Tjalda? Bara inn með hópinn. Inn. Kjallari hússins var eins og allt þarna hreinn og heitur og þar var stur- ta. Hópurinn var drifinn þangað, börnin öll úr fötum sínum og svo í notalegt bað úr sturtunni. Á meðan tíndum við hjónin saman hrein og góð föt af mismunandi stærðum, er þau svo klæddust; síðan að eins rausnar- legu matborði og kostur var á. Mikið hlógu þau að hvert öðru í þessum mis- stóru og mislitu flfkum er þau voru í. Hress og kát kröfðust þau þess að fá að þvo upp eftir borðhaldið og gera hvaðeina annað er þyrfti að gera og þau gætu gert. Svo sannarlega var þetta yndislegur hópur og fögnuður okkar hjóna ekki síðri yfir því að geta veitt allt er frekast þurfti með. Ennþá hefst ég allur af gleði er ég minnist þessa. Um kvöldið var svo gengið frá öllu, er þurfti með undir svefninn, því nóg var af sængurfatnaði og teppum. Morguninn eftir kvað svo allt við af glaðværu skvaldri meðan þau klæddu sig í þurr og hrein föt, er látin höfðu verið í þvottavél um kvöldið og þurrkuð. Konan mín útbjó svo veislu- mat með aðstoð stúlkna, er voru þarna í meirihluta og vildu ólmar sýna snilli sína við matargerð og leggja á borð. Hvílík umsvif og hjálpsemi og óþvinguð barnsleg gleði. Þegar svo hópurinn kvaddi hress og kátur, kröfðust börnin þess hvert af öðru að fá að kyssa okkur með þakklæti fyrir allt og allt. Lítið vorum við glöð þeg- ar við sáum hópinn hverfa yfir í Horn- víkina. Mánuði síðar eða svo kom svo sending frá Edinborg. í pakkanum voru tvær fáséðar bækur af ferðum enskra manna um Island, svo og myndir af öllu ferðalagi kennaranna með börnin um Hornstrandir, ásamt mynd af okkur hjónunum á tröppum hússins, er konan tók rétt áður en þau fóru; einnig frá kennurunum strangt tiltekið heimboð til Edinborgar, þegar við gætum komið því við. Kórónan á þetta allt voru svo tvö handskrifuð blöð með þakkarkvæði, ort af ein- hverju barnanna, og undirskrift þeirra allra. Það var dýrgripur.“ Gestum fjölgar „Ég held að ég hafi verið frernur ósínkur að eðlisfari og ávallt talið mig aflögufæran meðan ég átti eitthvað til. Þegar ég fór á vitann taldi ég óhjá- kvæmilegt að kaupa eitthvað er kæmi sér vel ef leysa þyrfti smærri vanda- mál einhverra er kæmu við á vitanum á ferð sinni um Strandir. Ég keypti því tvær neftóbaksdósir — notaði það aldrei sjálfur — fleiri pör af sokkum og strigagönguskóm af misjafnri stærð, sængur og sængurfatnað, vasa- hnífa ofl. Búrið, sextán fermetrar, var fullt af ýmiskonar matvælum, er þoldu geymslu. Tvær voru frystikist- urnar og stór frystiklefi, allt fullt af mat og sífellt bætt við ef eitthvað vantaði. Það er ekki fleipur þótt ég segi að í því nær hvert sinn er menn af varðskipunum komu með varning að vetri til, þá átti ég koníaksflösku. Sestir við eldhúsborð hellti ég ávallt í staup fyrir þá. Lét svo tappa í flösk- una og lét hana standa á borðinu hjá þeim. Sjálfur tók ég mér stundum staup í kunningjahópi, en aldrei var ég háður víni. Væri ég spurður hvort ég drykki ekki, var svar mitt ávallt það sama: að ég væri að eðlisfari svo fullur að ég þyrfti aldrei að bæta á mig víni. Þegar ég kom á vitann var að kom- ast í móð að ferðast um Strandir. Fyrstu gestir á vorin voru breskir, fimm til sex með fararstjóra, konur og karlar. Það voru einhverjir háttvísustu ferðamenn er komu til okkar. Fyrstu árin var koma gesta sextíu til hundrað en síðustu árin tvö til fjögur hundruð. Ávallt var tekið á móti öllum með sama ánægjulega hugarfarinu, öllum veittur matur og drykkur og þá nætur- gisting ef með þurfti. Aldrei var hug- leidd gjaldtaka önnur en sú er fólst í þeim huglægu gildum að láta öllum finnast þeir velkomnir og veita af þeirri gleði og rausn er var manni til sóma. Yfirleitt gerði ég aldrei neitt nema ég væri ánægður með það sjálf- ur, hvað sem aðrir sögðu. En tæplega hef ég búið til þessa áráttu til greiðasemi í sjálfan mig: ætli hún sé ekki arfur fyrst og fremst frá móður minni og hennar föðurætt, án þess ég sé að gefa til kynna að faðir minn hafi verið sínkur, hvað ekki var til í fari hans. í tengslum við þetta er gaman að geta spurningar eins blaða- mannsins um hvort það kostuðu mig ekki of mikið allar veitingar fyrir kannski þrjú til Ijögur þúsund manns yfir tímabilið. Ég svaraði því einu að það kostaði mig meira að gera það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.