Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 26
B Ú N A Ð A R R I T
6
(>. önmir störf og' stjórnarályktanir.
I ársbyrjun 1935 undirbjó ég eftir venju áætlanir uxn
tekjur og gjöld l'élagsins árin 1935 og 1936, ásamt
greinargerS og afgreiddi þau inál til ríkisstjórnarinnar.
Einnig undirbjó ég inál fyrir Búnaðarþing, gerði m. a.
áætlun um tekjur og gjöld félagsins 1935, samdi og
safnaði starfsskýrslum og sá um útgáfu þeirra í sér-
prentuninni „Til Búnaðarþings 1935“, (sjá einnig Bún-
aðarrit 49. árg., bls. 1—144). Ennfremur tólc ég saman
skýrslu um Búnaðarþingið 1935, sem fyr getur og
afgreiddi mál frá því, eftir því sem við átti og efni
stóðu til.
Þrotið var upplag af skýrslubókum fyrir fóður-
birgðafélög og gerði ég, í samráði við Theódór Arn-
björnsson, ný og fjölbreyttari form fyrir þær skýrsl-
ur og sá um prentun þeirra.
Sömuleiðis sá ég að öllu leyti um ritstjórn og útgáfu
49. árg. Búnaðarritsins, þótt ekki væri því lokið, þegar
ég lét af búnaðarmálastjórastarfinu.
Á Búnaðarþingi kom til tals — í sparnaðarskyni —
að fá skýrslubækur fóðurbirgðafélaganna prentaðar á
Akureyri, en prentsmiðja Odds Björnssonar, sem lík-
legust þótti, treystist elcki til að prenta þær, og voru
þær því prentaðar hér í Reykjavík, eins og áður.
Á Búnaðarþingi 1935 var samþykkt (sbr. gjaldl. 6 g. í
fjárhagsáætlun félagsins) að veita 1000 kr. styrk 1935
og 500 kr. 1936 til kennslubús Búnaðarsambands Suð-
urlands að Gunnarsholti, ef það að áliti lelagsstjórnar
væri þannig úr garði gert, að maklegt þætti að viður- j
kenna það sem kennslubú. Þessa viðurkenningu fékk
búið á stjórnarfundi 31. maí 1935 og fékk síðan greidd-
an styrk á því ári eins og til var ætlast, enda virtist
búið fara vel af stað undir stjórn Kristjáns Karls-
sonar, nú skólastj. á Hólum. En nú er bú þetta úr sög-
unni og mun búnaðarm.stj. gera nánari grein fyrir því.