Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 38
18
BÚNAÐARRIT
Árið 1935 eykst hrein eign félagsins um kr. 5806,38
í sambandi við þetta, skal þess getið, að eignir félags-
ins á Sámsstöðum eru mjög varlega áætlaðar í eigna-
reikningi félagsins í árslok 1935. Þar sem félagsstjórn- ■]
in ákvað að afskrifa eignir félagsins þar um 10%, eða
um kr. 6818,45 frá því sem tilraunastöðvarstjórinn
lagði til að yrði gert, og mun mat hans á eignunum
þó hafa verið í samræmi við það, sem þær voru metn-
ar í árslok 1934.
Um niðurstöðuna í árslok 1936, sem sýnir eigna-
aukningu á árinu, er nemur kr. 11845,03 þarf að at-
huga þetta:
Búnaðarþing 1935 byggði fjárhagsáætlun félagsins
á því, að ríkissjóður legði því 200 þús. kr. á árinu
1936. En þegar fjárlögin voru afgreidd á Alþingi varð
framlag til félagsins aðeins 180 þús. kr., eða 20 þús.
krónum lægra en fjárhagsáætlun félagsins gerði ráð
fyrir. Nú ætlaði Búnaðarþing 1935 mjög lága upphæð
lil óvissra útgjalda, og batt þó jafnframt nokkuð af
því fé til ákveðinna starfa, svo sem milliþinganefndar
o. fl. Það má því segja, að Búnaðarþing 1935 hafi ráð-
stafað svo að segja hverjiun eyri al' væntanlegum tekj-
um félagsins, miðað við 200 þús. kr. fjárveitingu úr
ríkissjóði.
í ársbyrjun 1936 sá stjórnin, að sérstakra ráðstafana
var þörf, ef félagið ætti að geta staðið við skuldbind-
ingar sínar á árinu. Var þá áleveðið, að draga 10% af
styrk til búnaðarsambandanna og annara stofnana, er
njóta fasts framlags frá Búnaðarfélaginu. Sparaði fé-
lagið á þann hátt kr. 6570.00. Að öðru leyti fól stjórnin
búnaðarmálastjóra og gjaldkera að gæta ýtrustu hag-
sýni um allar fjárreiður, svo að takast mætti að vinna
upp hinar töpuðu tekjur, eftir því sem unnt væri. Hefir
það verið reynt eftir föngum, svo sem með því að fækka
starfsmönnum á skrifstofu félagsins og á ýmsa fleiri
vegu. Þessi viðleitni félagsstjórnarinnar og starfs- ^