Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 45
BÚNAÐARRIT
25
ráðherra, hefir ráðuneytið lofað að greiða þann lialla,
er af útgáfu blaðsins hefir leitt til 1. okt. s. 1.
Frá þessu er nánar skýrt í skýrslu Metúsalems Ste-
fánssonar.
Húseignin.
Sumarið 1936 var hús félagsins allt málað að utan.
Þá var og bókasafn innréttað í vesturstofu niðri, eins
og áður er getið um. En í gamla bókasafnsherberginu
var útbúin skrifstofa, sem félagið leigir nii nýbýla-
stjórn ríkisins.
Til viðhalds og aðgerða á húseign félagsins, hefir
verið varið árið 1935 kr. 907,88, en árið 1936 kr. 3527,26.
Auk þess eru svo opinber gjöld af húseign félagsins,
kr. 694,96 ári'ð 1935, en kr. 664,06 árið 1936. í viðhalds-
og aðgerðakostnaði 1936, er talin öll aðgerð við flutning
bókasafnsins og hefir það hleypt kostnaðinum mjög
fram. Þar sem innrétting bókasafnsins og aðgerð á
skrifstofu nýbýlastjórnar mun hafa kostað allt að 2000
krónum.
Afmæli lelagsins.
A þessu ári eru 100 ár síðan „Suðuramtsins Húss-
og bústjórnarfélag“ var stofnað. Má telja það upphaf
]>ess félagsskapar, er nú ber nafnið Búnaðarfélag ís-
lands. f tilefni af því fól síðasta Búnaðarþing stjórn
Búnaðarfélags íslands, að velja þriggja manna nefnd
innan félagsins, til þess að ákveða stærð.og efnisval
minningarrits, er fjalli um aðaldrættina í sögu bún-
aðarfélagsskaparins hér á landi síðastliðin 100 ár, og
sjá um ritstjórn þess. Ritið skyldi fullprentað og búið
til útsendingar fyrir 28. jan. 1937.
A stjórnarfundi 30. júni 1935 kaus félagsstjórnin i
nefndina þá dr. Þorkel Jóhannesson, Sigurð Sigurðs-
son, fyrv. búnaðarmálastjóra og Tryggva Þórliallsson,
L