Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 61
BÚNAÐARRIT
41
(ræktunarland ríkisins í Flóa) og veitt ýmiskonar
leiðbeiningar, bæði munnlega og skriflega.
Ásgeir L. Jónsson.
Garðyrkjuráðunauturinn.
Aðalstarf mitt hefir verið, eins og undanfarið, að
veita Gróðrarstöðinni á Laugarvatni forstöðu, og er
það ekki lítið verk, frá því að fyrst er farið að sá til
plantna inni, eftir miðjan marz, til í nóvember, að
lokið er við að taka upp og koma uppskerunni fvrir.
Mikla árvekni þarf til að halda görðunum hreinum
fyrir illgresi.
Sá hængur hefir verið á hér að ekki hefir fengist
nærri nógur áburður húsdýra til starfseminnar, en
án hans fæst ekki viðunanleg uppskera af garðjurt-
um úr nýbrotnu landi, sem aldrei hefir verið í rækt
fyr, svo að uppskera hefir af þessari ástæðu ekki
svarað til landrýmis og fyrirhafnar.
Af tilraun, sem ég gerði með húsdýraáburð fyrir
kartöflur, virðist augljóst að það sem vantar í jarð-
veginn hér, sé sá gerlagróður sem jurtunum er nauð-
synlegur til góðs þroska. Úr þeirri vöntun verður
ekki bætt nema ineð húsdýraáburði. Frá þessari á-
burðartilraun, sem mér virðist mjög merkileg, verður
nánar greint annarsstaðar. Þar sem húsdýraáburður
var notaður eingöngu, fengust 399 kg. af 100 fermetra
reit. En þar sem lnisdýraáburður og nitróphoska voru
borin saman, fengust 410 lcg. af reit. Sýnir þetta glöggt
hve ágæta uppskeru þessi jörð getur gefið, ef hún að-
eins fær það sem hún þarfnast. Þar sem nitrophoska
ein var borin á, varð uppskerumagn 125,5 kg., en þar
sem áburðarlaust var varð uppskeran 77 kg. af 100
lermetrum.