Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 64
44
BÚNAÐARRIT
aðax- liafa verið, er þó matarlaukurinn. Hér á landi
hefir oft verið reynt að sá fræi til hans, en ekki lánast.
En til er önnur aðferð við ræktun lauka, sem hér var
reynd í sumar. Eru þá keyptir smálaukar, um 1 cm.
að þvermáli og settir niður á vorin. „Stiklök" eru þeir
nefndir í Noregi, þvi þeim er stungið niður. Svo vaxa
þeir og þroskast ef þau skilyrði eru fyrir hendi, sem
jurtin setur. Hér voru sett niður 800 grönxm al' þess-
um smáu laukum, í heita jörð, en uppskeran, sem
hyrjaði uixx miðjan ágxist, varð 25 kg. Þessi laukupp-
skera jafngildir útlendri vöru að gæðum. Sá galli er
á, að þessi laukur geymist ekki vel, en til sumarnotk-
unar og langt fram á haust er hann ágætur. Þetta er
verðmæt og næringarrík matjurt. Þarna er líka mögu-
leiki sem biður þeirra, sem ráða yfir heitu landi.
Ræktun blóma liefir verið þó nokkur, aðallega
margar tegundir hinna fjölskrúðugu sumarblóma.
Hafa þau sett sinn fagra svip á meðfram götunx og
grasbletlum og vakið eftirtekt flestra gesta, en þeir
koma margir að Laugarvatni i júní, júlí, ágúst og
september.
Garðyrkjunámsskeiðin hér á Laugarvatni liafa verið
svo vel sótt, að færii hafa komizt að en vilja. En engin
tök eru á að hafa fleiri en 12 nemendur í einu. Er það
og ærið verk fyrir einn mann að stjórna svo mörgu
fólki, sem sumt hefir ekki komist neitt í kynni við
garðyrkju áður. Er lögð herzla á að venja nemendur
sem hezt við hin algengu garðyrkjustörf á vorin og að
vera sem vandvirkasta. Þó að ekki sé kostur á að
vinna fjölbreytt garðyrkjustörf í gróðrarstöðinni hér,
þá má þó leggja góðan grundvöll að garðyrkjuþekk-
ingu einstaklinganna, sem þeir geta alltaf bætt ofan á
siðar. Góðir, verkhyggnir nemendur geta haft ótrú-
lega mikið gagn af veru sinni á sliku námsskeiði, þó
tíminn sé stuttur.