Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 68
48
BÚNAÐARRIT
Hrossaræktar ráðunauturinn.
Árið 1935 vann ég hjá Búnaðarfélagi íslands í þágu
hrossaræktarinnar og fóðurbirgðafélaganna, en einnig
var ég féhirðir félagsins. Um féhirðisstörfin hefi ég
ekkert sérstakt að segja, en um afskipti mín af búfjár-
ræktinni vildi ég segja lítið eitt.
Hrossasýningar voru hadnar í Borgarfjarðar-, Mýra-,
Snæfellsness-, Dala-, Stranda- og Vestur-ísafjarðar-
sýslum. Alls voru haldnar 10 héraðssýningar og 2 af-
kvæmasýningar. Á öllum sýningunum samtals voru
sýnd 861 hross.
Á héraðssýningunum hlutu I. verðlaun 10 stóðhestar
og 102 hryssur. Af stóðhestunum höfðu 8 hlotið áður
1. verðl., en 2 hlutu þau nú í fvrsta sinn. Af hryssunum
höfðu 32 áður hlotið I. verðl., en 70 hlutu þau nú í
i'yrsta sinn.
Stóðhestarnir, sem að þessu sinni bættust í I. verð-
launahópinn voru þeir Stjarni — rauður -—, eign
Hrossar.fél. Hraunhrepps, og Glaður — jarpur —, eign
Hestamannafélagsins Glaðs í Dalasýslu.
Stjarni er fæddur 1929. Faðir hans er Nasi frá Skarði
í Gnúpverjahreppi, en móðir hans er hrún í Geldinga-
holti — eystra — í sömu sveit. Stjarni er mikill hestur
og prúður og líkist föður sínum mikið, þó töluvert
skorti á, að jafngildi Nasa um allt útlit og svo atgervi.
Glaður er fæddur 1930. Faðir hans er Óskars-Jarpur
frá Brunná í Saurbæ, Þáttarson á Kleifum í Gilsfirði,
en móðir hans er Grána í Hvítadal, myndarhross.
Glaður er prúður hestur og myndarlegur og líkist
Þætti afa sínum mjög, en þó skortir hann alstaðar á
að vera jafnoki Þáttar. Er og fyr vænt en valið sé.
Afkvæmasýningarnar tvær voru fyrir þá Móra frá
Kjalardal — eig. Hrossar.fél. Leirár- og Melasveita —
og Víðis frá Þorkelshóli — eig. Hrossar.fél. Álftanes-
hr. á Mýrum. Hlutu þeir báðir I. verðl. fyrir afkvæmi