Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 83
BÚNAÐARRIT
nm og var þar fram a8 fengitíma. Þá var hann tekinn
i Deildartungu, og var þar fram úr. Síðari hluta vetrar
1934 ber á því, að hann er með hósta. Hann var rekinn
á fjall með öðru fé, en lieimtist ekki um haustið.
Nokkru eftir að fé var tekið í Deildartungu haustið
1934 fer að hera á ólireysti í fénu. Var þá snúið sér
til rannsóknarstofu háskólans. Hún fékk lungu til
rannsóknar, og úrskurðaði að það, sem að fénu gengi
væri lungnabólga, og sendi bóluefni. Féð var bólusett,
en hélt samt áfram að drepast. Um vorið var sýnilega
margt af fénu veikt. Þegar réttir komu um haustið
1935, þá vantaði margt af fjalli — hafði drepist um
sumarið — og þá drapst margt strax í réttunum —
þoldi ekki hreyfinguna. Þá her líka á veikinni á tveim
öðrum bæjum: Kletti, en þar er fjársamgangur á milli
og í Geirshlíðarkoti, en milli fjár þar og fjárins í Deild-
artungu og Kletti er ekki vitað til, að um neinar sam-
göngur hafi verið að ræða.
Eftir ósk minni lagði ráðuneytið fyrir rannsóknar-
stofu háskólans að senda mann upp eítir og rannsaka,
hvaða veiki væri hér á ferðinni og hvað hægt væri að
gera, til að koma í veg fyrir útbreiðslu hennar og lækna
hana. Ranns.stofan varð við þessum tilmælum og menn
frá henni fóru að Deildartungu. Þeir sögðu þá, að um
lungnaorma væri að ræða, en lungnabólga blandaðist
saman við, og töldu ekki ástæðu til að aðhafast neitt
sérstakt, til að varna útbreiðslu hennar, enda væru
lungnaormar um land allt.
En veturinn 1935 til 1936 fór að drepast fé á þó
nokkrum öðrum bæjum, og bændurnir fullyrtu að
hér væri ekki að ræða um venjulega ormaplágu, og
ekki heldur um lungnabólgu, að minnsta kosti ekki
eina.
Oðru hvoru þennan vetur fékk rannsóknarstofan
lungu til rannsóknar, en um árangur af þeim rann-
sóknum heyrðist ekkert.