Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 128
108
BÚNAÐARRIT
mistóhávingull, finst fræ. Tilraunareitir í þágu tún-
ræktarinnar sumarið 1930 voru 573 talsins, viðfangs-
efni þeirra 165, en landstærðin 1,63 ha. er tilraunirnar
ná yfir. Má af þessu sjá að tilraunir í túnrækt eru
orðnar allumfangsmiklar. Túnræktarland stöðvarinn-
ar var í árslok 1936 5,35 ha, þar af er rúmur ha. sem
var sáð i vor.
Ein er sú tilraun, sem ég vil sérstaklega geta hér i
þessu starfsyfirliti mínu, og minntist ég á tilhögun
hennar i síðustu starfsskýrsu minni, þ. e. tilraunin
með mismunandi langa forræktun eða undirbúnings-
ræktun fyrir túnrækt.
Tilhögun tilraunarinnar um þessi mismunandi sáð-
skipti eða forræktun hefir verið hagað þannig:
Sáðskipti 1. Túnrækt frá 1933—36. Sáð til túnræktar
í.nýhrotið land 19. maí 1933. Skjólsæði hafi’ar, þeir
slegnir grænir og þurrkaðir í sept. — 1934, 1935 og
1936 sem tún.
Áburður 1. ár 100 srnál. mykja á lia., en túnræktar-
árin 3 hafa verið lxorin á 300 kg. nitrophoska á ha.,
eða öll árin 900 kg. nitrophoska. Þes?i túnrækt er höfð
sem xnælikvarði fyrir 2 næstu sáðskipti, sem hægt
verður að bera saman, á þessu stigi tilraunarinnar.
Sáðskipti 2. Hefir verið i’æktað jafnlengi og nr. 1.
Það er plægt vorið 1933 og sáð þar byggi. 1934 er lika
sáð byggi, og bæði árin borið á 300 kg. nitroph. á ha.
1935 eru í-æktaðar lcartöflur í landinu og áburðarmagn:
100 smál. mykja og 200 kg. nitrophoska á ha. Fjórða
árið, þ. e. 1936, var sáð grasfræi í landið og skjólsæði
100 kg. al' liöfrum á ha. og áburður það ár 100 kg. nitro-
phoska á ha. í þessu sáðskipti hefir, eins og í hinu
fyrra, verið borinn jafnmikill áburður þessi 4 ár, að-
eins sú breyting á áburðargjöfinni, að búfjáráburður-
inn er borinn til kartaflnanna, i stað þess að setja hann
i landið þegar því var breytt í tún, og að dregið er af