Búnaðarrit - 01.01.1937, Síða 145
BÚNAÐARRIT
125
þvi sem ég hefi komizt næst, munu ræktunarstaðir
hafa verið 150—160 á Suðurlandi, á Vesturlandi 64—68,
á Norðurlandi 110—114 og Austurlandi 10 staðir, eða
samtals á öllu landinu 334—362 staðir. Frá sumrinu
1936 hefir mér borizt korn frá Suður-, Vestur- og
Norðurlandi, og virðist mér kornið allt vera fremur vel
þroskað og útlitsgott.
Vöxtur kornyrkjunnar hefir, eftir þeim gögnum sem
lil eru, næstum tvöfaldazt árið 1936 miðað við árið
1935, og má það teljast fremur gott og stefna í rétta
átt. Hitt er inér ljóst að hún er víða reynd sem önnur
nýjung, en fær ekki neina rótfestu, reynd 1—2 ár og
liætt síðan, slik framkvæmd veitir ekki kornyrkjunni
brautargengi. Þeir sem byrja á kornrækt þurfa að setja
sér það mark, að rækta bygg og hafra i sáðskiftum
með kartöflum og túnrækt, á þann liátt fær kornyrkj-
an fasta og ákveðna frainkvæmd, sem getur orðið, þótt
í sniáum stíl sé í fyrstu, til að kenna þeim er þetta
reynir, að stunda þessa framleiðslugrein i stærri stíl.
Vil ég sérstaklega henda mönnum á sáðskiftitilraun-
ir þær, sem lýst er hér að framan, og athuga hvaða
gildi slík ræktunartilhögun gæti haft ef hún yrði al-
mennt upp tekin.
Bæði árin hefir korn verið ræktað i allstórum stil á
Seljalandi lijá Samyrkjufélagi Eyfellinga og i Reyk-
holti. Kornyrkja þessi hefir þó á margan hátt gengið
ver en sltyldi, mest vegna mistaka við ræktunina. Síð-
astliðið sumar var aðeins 1 ha ræktaður með korni í
Eyjafjallahéraðinu, en um 9 ha í Reykholti. Varð upp-
skeran i báðum þessum stöðum í minna lagi, og liefir
mikla rokið 16. sept. í haust átt mestan þátt í því.
Sömuleiðis hefir kornyrkjan aukist nokkuð í tilrauna-
stöð Ræktunarfélags Norðurlands á Akureyri, og hefir
byggræktin heppnast þar vel 2 undanfarin suniur, en
hafrar náð lélegum þroslca.
Þá hefir Kaupfélag Eyfirðinga undirbúið akuryrkju-