Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 154
BÚNAÐARRIT
1B4
Skýrsla sandgræðslustjórans.
Störfin að vetrinum eru aðallega ritstörf, reiknings-
uppgjör, skýrslugerð o. fl. Ferðalög eru ekki að vetr-
inum, nema stuttar ferðir í nærlæg héruð.
Árið 1935 fór ég 4. apríl með Ásgeir L. Jónssyni verk-
fræðingi suður á Miðnes til þess að skoða sandfoks-
svæðið milli Sandgerðis og Bæjaskerja. Svæðið var
mælt og kortlagt og gerðar áætlanir yl'ir sjóvarnargarð,
girðingu og sandgræðslukostnað á fyrsta ári.
2. mai athugaði ég sandgræðslusvæðið hjá Eyrar-
bakka, réði menn til vinnu og gerði ráðstafanir um það,
sem mest var aðkallandi þar.
10. maí fór ég alfarinn að heiman, fyrst til Selvogs,
leit eftir sandgræðslunni á Strönd og athugaði girð-
ingarstæði frá Nesi í Selvogi, yfir Selvogsheiði og aust-
ur fyrir neðan Hlíðarenda, Litlaland, Vindheima og
fyrir sunnan Hraun að Ölfusá á Hamraendum. Það
lá fyrir uinsókn um girðingu uin þetta svæði. Landið
var stórt, en girðingin tiltölulega stutt með því að
leggja hana þá leið, sem hér er nefnd. Margar jarð-
ir áttu land þetta, við marga aðila var að eiga, og
sitt hvað að atlniga áður en girt var. Eftir það fór ég
um Rangávallasýslu og skoðaði sandgræðslustöðvar
á Kambsheiði, Kaldárholti og Akbraut, Landsveit,
Rangárvöllum, Hvolhreppi, V.-Landeyjum og Þykkva-
bæ.
24. maí fór ég til Reykjavíkur, gerði ég þar ýmsar
ráðstafanir er með þurfti, skipti girðingarefni milli
sandgræðslustöðvanna, eftir því, sem þörf var á, og sá
um flutning á því á hvern stað fyrir sig. í maímánuði
og frain í miðjan júní var unnið á öllum sandgræðslu-
stöðvunum að sáningu og viðgerð á girðingum, og sum-
staðar að fleiru, sem helzt var þörf á að gera.
Eftir tilmælum sýslumanns Skaftfellinga fór ég 29.