Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 185
B Ú N A Ð A R R I T
165
fyrir ríkisvaldið, einnig er oft til þess leilað sem ráð-
gefandi stofnun fyrir Alþingi og ríkisstjórn.
Vegna þessara síðartalinnar starfsemi, hefir ríkis-
valdið haft ástæðu til að gera kröfu til afskifta af
fyrirkomulagi félagsins. Með tilliti til þessarar aðstöðu
B. f. skal hér farið nokkrum orðum um þær kröfur i
þessu efni, sem rikisstjórnin gerir hér til afskifta af
skipulagi B. f. Það er vitanlegt öllum sem til þekktu,
og ljóst hugsa, að þegar Alþingi samþykkti að fella
niður ákvæðin um hina ríkisstjórnarskipuðu stjórn-
armenn B. í., hafði þingmeirihlutinn fyrir augum,
álcvæðin sem fylgdu fjárlögum 1935, og hugðizt koma
áhrifum sinum fyrir með framkvæmd þeirrar athuga-
semdar, enda var af B. í. veitt móttaka styrk þeim,
sem fylgdi athugasemdinni án allra gagnkrafa, má
því telja að B. í. hafi með því á óbeinan hátt lagt sig
undir nýjan samningsgrundvöll í þessu efni.
Afskiptum ríkisvaldsins al' B. í., sem felzt í fyrsta
kafla jarðræktarlaganna, má skifta í tvennt:
í fyrsta lagi yfirstjórn og úrskurðarvald landbún-
aðarráðherra.
í öðru lagi undirbygging B. í. og lcosning til Bún-
aðarþings.
Samkvæmt öllum starfsvenjum er búnaðarmála-
stjóri sá maður, sem hefir yfirlit yfir daglega starfsemi
félagsins og lætur framkVæma flest þau mál, sem
skýr og föst fyrirmæli eru um. Meðan starfssvið B.
í. er tvískift, eins og áður er bent á, verður uinboðs-
mennska hans vegna B. í„ bæði að framkvæma mál,
sem tilheyra B. í. sem félagi, og jafnframt að inna af
hendi þau sörf, sem ríkisvaldið felur B. I. með laga-
fyrirmælum, og mörg eru þess eðlis, að þau krefjast
ákveðinnar afgreiðslu, án íhlutunar stjórnar B. I., sem
vitanlega tekur aðallega ályktanir um framkvæmdir,
sem ekki liggja bein fyrirmæli um.
Að þessu athuguðu er íhlutunarréttur um val hún-