Búnaðarrit - 01.01.1937, Síða 227
B Ú N A Ð A R R I T
‘207
verði eftirlits og fóðurbirgðafélög, eins fljótt og
unnt er í öllum hreppum landsins, þar sem þau
eru ekki þegar komin á fót. Búnaðarþing vill
benda á að líklegustu aðgerðir til þess að ná þessu
marki muni vera:
a. Að búnaðarsamböndin verði hvött til þess að
nýju, að hrynda þessu máli í framkvæmd, sbr.
samþykkt frá síðasta aðal-Búnaðarþingi.
1). Að ráðunautur sá, er málið heyrir undir, eða
annar hæfur maður, verði látinn ferðast um
landið, flytja erindi og leiðbeina við undirbún-
ing og stofnun félaganna, eftir því sem þörf
krefur á hverjum stað.
c. Að beitt verði hverju því ráði, er vænlegt þykir
til þess að glæða skilning og áhuga manna fyrir
málinu, t. d. með ritgerðum, útvarpserindum
og umræðum á bændanámsskeiðum.
2. Búnaðarþing telur æskilegt, að lögum um fóður-
tryggingarsjóði verði breytt i þá átt, að þeir hrepp-
ar, sem hafa starfandi fóðurbirgðafélög, fái hlut-
fallslega jafnt í styrk af því fé, er sýslufélögum
ber eftir lögunum og aðrir hreppar sýslunnar, er
iiðeins hafa fóðurbirgðasjóði, og að það verði sein
aukastyrkur til félagsins, til viðbótar því, sem það
fær samkv. búfjárræktarlöguhum“.
G r e i n a r g e r ð :
Varla verður um það deilt, að sjálfsagðasta undir-
stöðuatriði fyrir afkoinu bænda er það, að þeir hafi
á hverjum tíma nægilegt fóður handa búpeningi sín-
um, þann tíma árs sein þess þarf með. En því miður
er sú saga kuunari, en svo að frá þurfi að segja, live
mikill misbrestur hefir á þessu orðið, fyr og síðar, og
skal sá þáttur ekki rakinn hér.
Með heimildarlögum um eftirlits- og fóðurbirgðafél.,