Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 228
208
B Ú N A Ð A R R I T
frá 8. nóv. 1931, er mörkuð ný stefna á þessu sviði.
Það er ekki aðeins svo að með lagasetning þessari,
sé stefnt að því marki, að tryggja búpeningnum nægi-
legt fóður, heldur eru jafnframt lögð drög til fræði-
legra athugana um afkomu hverrar búgreinar fyrir sig,
og verður það að teljast annarsvegar undirstöðuatriði
fyrir framkvæmd fóðurtrygginganna, og hinsvegar
meginstoð undir rannsóknum um afkomu húnaðarins.
Það hefir sýnt sig að þau sveitarfélög sem hafa starf-
rækt þennan félagsskap um lengri tíma, og fylgt fyrir-
inælum öllum, hafa orðið sjálfum sér nóg, þegar harð-
indi liafa borið að höndum. Og auk þessa hefir af-
urðamagn búpeningsins aukist til stórra muna. Nú
mætti ætla að nokkur skriður væri lcominn á mál
þetta á síðustu árum, en því miður hefir reynslan
orðið önnur. Þrátt fyrir margskonar hvatningar og
skýringar málinu lil stuðnings, eru enn þann dag
í dag, ekki starfandi hér nema aðeins um 25 eftir-
lits- og ioðurbirgðafélög, þetta verður að teljast al-
veg' óviðunandi.
Margt ber nú að höndum, sem gefur alveg sérstalct
tilefni til nýrrar herferðar á hendur þeim mörgu,
er enn standa utan við þennan félagsskap. Má í þvi
sambandi benda á harðindi á Norður- og Austur-
landi s. 1. ár og viðhorfið hér á Suöurlandi nú.
Þá tillögu sem hér er borin fram, ber ekki að skilja
■svo, að lítið sé gert úr því sem unnið hefir verið
fyrir þetta að undanförnu. En það ber að skoða
sem knýjandi nauðsyn til að láta hér ekki staðar
numið.
í einu af skjölum þeim sem liggja hér fyrir, er
félagsskap þessum fundið það til foráttu, að skýrslu-
gerð um fóðrun og annað þar að lútandi reynist
bændum svo erl'ið að æskilegt mætti telja að þetta
yrði ekki gert að skilyrði fyrir starfsemi þessara fé-
Jaga til að byrja ineð. Nefndin lítur svo á, að slíkar