Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 237
B Ú N A Ð A R R I T
217
hr. Halldór Pálsson hefir lagt fyrir stjórnina í bréfi,
dagsettu x% 1937, geti komið til framkvæmda eftir
því sem fært þykir, þegar hinn fyrirhugaði sauðfjár-
ræktarráðunautur hefir húið sig fullkomlega undir
starf sitt, og verði honum þá falin umsjón með til-
raunastarfseminni.
Mál nr. í8.
Ihn kjarnfódurverzlun.
Búfjárræktarnefndin har þetta mál fram með eftir-
farandi greinargerð og tillögu. Fyrsta tillaga nefndar-
innar var þó ekki samþykkt óbreytt, en eins og hún
er prentuð hér á eftir var hún samþykkt með 10
samhlj. atkv.
G, r e i n a r g e r ð :
Notkun kjarnfóðurs fer stöðugt vaxandi hjá hænd-
um landsins. Jafnlramt l'er þá einnig vaxandi sú nauð-
syn að kaupandá sé tryggt að varan sé að efnainni-
haldi i raun og veru sú, sem hann ætlast til, og álítur
sig vera að kaupa. Að því er snertir síldarmjölið, sem
nú er það kjarnfóður sem almennast er notað, má
fullyrða að þetta öryggi er ekki fyrir hendi hjá öll-
um síldarverksmiðjum landsins, enda þótt ríkisverk-
smiðjunum megi vel treysta í þessu efni.
Þótt verksmiðjunum sé yfirleitt skylt að taka á-
hyrgð á efnainnihaldi þess síldarmjöls, sem þær selja
til útlanda, mun nú ekki hægt að lieimta þá trygg-
ingu af verksmiðjum sem eru einlcaeign, þegar þær
selja síldarmjöl innanlands. Má færa fyrir því sterkar
líkur, að t. d. á síðastliðnu ári, hafi bændum verið
selt síldarmjöl með verði sem svaraði til fyrsta flokks
vöru, en án þess nokkur trygging væri fyrir vörugæð-
um, og án þess flokksmerki eða verksmiðjunafn væri
á vöruumbúðum. Fyrir kaupanda, sem vildi reka rétt-
ar síns, gæti það reynst óframkvæmanlegt, meðal