Búnaðarrit - 01.01.1937, Side 238
218
BÚNAÐARRIT
annars af því, að ómögulegt væri að sanna hvar varan
væri framleidd.
Nefndin telur því nauðsynlegt að við lögin sé bætt
ákvæðum, sem tryggi hetur rétt kaupandans í þessu
efni. Virðist réttmætt, að Búnaðarþing óski þess, að
Alþingi geri nú þegar breytingu á lögunum, svo sem
að framan greinir .
T i 11 a g a :
„Búnaðarþing ályktar að sltora á Alþingi það er
nú situr, að setja í lög nr. 28, 27. júní 1921, viðbótar-
ákvæði, sein tryggi, að allar fóðurmjölsverksmiðjur,
scm starfa í landinu, meti og flokki fóðurmjöl það,
sem selt er til fóðurs i landinu, þannig að tillit sé
tekið til ástands hráefnisins, og að því l'ylgi upplýs-
ingar um saltmagn þess, fóðurgildi og meltanlega
eggjahvítu. Jafnframt séu þær skyldaðar til að hafa
glöggt floklcs- og verksmiðjumerki á vöruumbúðum.
Ennfremur ályktar Búnaðarþing að skora á ríkis-
stjórnina, að tryggja það að hreppsfélögum og fóður-
birgðafélögum sé veitt innflutnings- og gjaldeyrisleyfi
fyrir útlendu kjarnfóðri, þegar verð á innlendu kjarn-
fóðri er óhagstæðara en á útlendu."
Mál nr. A9.
Frumvarp til laga um sauðfjárbótasjóð íslands.
Jón H. Fjalldal bar fram frumvarp um sjóðmynd-
un, til styrktar þeim bændum, sem verða fyrir stór-
felldu tjóni vegna sauðfjársjúkdóina, og fékk búfjár-
ræktarnefnd málið til athugunar. Lagði hún fram svo-
hljóðandi tillögu, sem samþykkt var með 8 samhlj.
atkv.
,,Með því að í lögum frá 8. sept. 1931, um búfjár-
rækt, V. kafla, eru hliðstæð ákvæði um búfjártrygg-
ingar og frumvarp þetta fjallar um, og þar sem frum-