Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 244
224
BÚNAÐARRIT
l)önd af jarðeignahlutum, sem teknir eru til nýbýla-
stofnunar, svo framarlega sem veðskuldin, þrátt fyrir
það, verður að teljast sæmilega tryggð, eða þá með
því að heimila, að hluti af veðskuld þeirri er á aðal-
jörð hvílir, færist yfir á nýbýlaeignina, í hlutfalli við
hvað það land er metið að verðgildi, og þetta án þess
að láta þessi skipti sæta sömu meðferð og um nýtt
lán væri að ræða, svo aðilum sparist sá aukakostn-
aður, sem af því leiðir.
Hinsvegar sér Búnaðarþingið ekki fært, að koma
fram með ákveðna tillögu um þetta efni, enda telur
hezt við eiga, að það mál yrði tekið til athugunar við
endurskoðun nýbýlalaganna sjálfra.“
Mál nr. 29.
Erindi aðalfundar Ihinaðarsambands Suðurlands,
am heijflutningstæki.
Fyrir þinginu lá tillaga frá aðalfundi Búnaðarsam-
hands Suðurlands, með áskorun til verkfæranefndar
Búnaðarfélags íslands um að hún rannsaki og gel'i al-
menningi sein fyrst, leiðbeiningar um heztu tæki til
heimflutnings á heyi.
Jarðræktarnefnd lagði fram efirfarandi tillögu, sem
samþykkt var með 11 samhlj. atkvæðum:
„Með skírskotun til fyrri samþykkta leggur Bún-
aðarþingið áherzlu á, að verkfæranefnd ljúki svo
fljótt sem verða má, rannsóknum sinum á notagildi
mismunandi heyflutningstækja, sem líkindi eru til
að komið geti hér að almennum notum.
Að þessari rannsókn lokinni, gefi nefndin Búnaðar-
félagi íslands skýrslu um athuganir sínar og niður-
stöður.
Kostnaðurinn greiðisl af fé því, sem ætlað verður
á fjárhagsáætlun félagsins á þessu ári til verkfæra."