Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 249
B U N A i) A R R I T
229
og nokkur kostnaður við kerin, auk kemiskra ei'na,
sem alltaf eyðast við rannsóknirnar sjálfar.
Með áframhaldi tilrauna þessara og í sambandi við
kalktilraunir á tilraunastöðvunum, vænti ég að geta
lcomist að nokkurri niðurstöðu um kalkþörf hér á
landi, og að geta með rannsókn á jarðprufum, sem
mér væru sendar, gefið upplýsingar um það, hvort
jarðvegurinn þarfnaðist kalks eða skeljasands til þess
að geta gefið sem arðvænlegasta eftirtekju fyrir þá
aðhlynningu, sem honum er veitt að öðru leyti
Auk áframhalds þessara rannsókna, er mér mjög
liugleikið, að geta á jiessu ári byrjað rannsókn á fos-
fórsýru-þörf jarðvegsins, og stefna þeim rannsókn-
um að því marki, að geta á sínum tíma orðið dóm-
bær um það, samkvæmt aðsendum jarðvegsprufum,
livort viðkomandi jarðvegur niuni þarfnast fosfor-
sýru áburðar, eða hann megi að ósekju spara, að
minnsta kosti eitthvert árabil
Til jiess að geta nolið nýjustu og fullkomnustu
tækja við þessar rannsóknir, mun ég þurfa viðbótar-
tæki fyrir ca. 5—000 kr., auk kemiskra efna ti! rann-
sóknanna.
Þá get ég heldur ekki komist hjá áframhaldandi
kaupum á vísindaritum til þess að fylgjast með fram-
þróun þessarar fræðigreinar erlendis, og geta notið
þeirra nýunga, er fram kunna að koma á þeim svið-
um sem ég er að fást við.
Virðingarfyllst. Búnaðarþingi 2% 1937.
Jakob IJ. Lindal.
Jarðræktarnefnd fjallaði mn análið, og lagði fram
eftirfarandi tillögu, sem samþykkt var með 12 sain-
hlj. atkvæðum:
„Búnaðarþingið telur jarðvegsrannsóknir Jakohs
H. Líndals svo merkilegan þátt í íslenzkri vísinda-