Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 265
BÚNAÐARRIT
‘245
„BúnaÖarþingið lelur upplýsingar þær, sem frk. Hall-
dóra Bjarnadóttir lætur í té í erindi þessu um nýjar
lopavélar, þess verðar, að þeim sé gaumur gefinn, og
beinir því þessvegna til stjórnar Búnaðarfélags íslands,
að hún afli sér sem beztra upplýsinga um vélar þessar.“
G, r e i n a r g e r ð :
Fröken Halldóra Bjarnadóttir er þjóðkqnn orðin
fyrir áhuga sinn og dugnað á sviði lieimilisiðnaðarins.
í erindi því, sem Halldóra Bjarnadóttir hefir sent
Búnaðarþingi, eru upplýsingar um nýjar kembi- og
spunavélar.
Vélar þessar eru smíðaðar í Englendi og eru nú að
ryðja sér lil rúms á Norðurlöndum, cn þó einkum á
Finnlandi. Kembi- og spunavélar þessar eru litlar, þurfa
til reksturs 1V2 hestafl og kosta kr. 8000,00 hjá H/f
Texlile Supplies Lewer Wartley, Leeds 12, Englandi.
Fröken Halldóra telur að afköst véla þessara nægi
sýslu- eða bæjarl'élagi til vinnslu ullar til heimilisiðn-
aðar.
Hér á landi eru starfandi tvær stórar ullarverksmiðj-
ur og tvær kembi- og spunavélar. Þrátt fyrir mikil af-
köst þessara véla, er almenningi það miklum erfið-
leikum bundið að fá unna ull sína í lopa og band. Ull-
in hefir ol't og tíðum legið hjá verlcsmiðjunum ár og
jafnvel enn lengri tíma. Og svo er komið að eigendur
ullarinnar neyðast til að selja eigendum verksmiðjanna
ullina, við því verði sem verksmiðjurnar ákveða ,en
það er oft ekki í samræmi við markaðsverð. En lop-
inn eða bandið, sem t'it er tekið, er rándýr vara.
Allt þetta tefur mjög heimilisiðnaðinn, og dregur
mjög úr vexti hans.
Það er því full þörf á því, að einstök liéruð lands-
ins verði sjálfbjarga á þessu sviði, og vélar þessar virð-
ast líklegar til þess. Verð þeirra og orka sú er þær