Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 269
B Ú N A Ð A R R I T
249
á gildandi bændaskólalögum, nr. 51, 19. maí 1930, sein
líka er búið að leggja fram á Alþingi.
Bæði frv. tók nefndin til athugunar, og ber nú fram
breytingartillögur við hið nýja bændaskólafrumvarp,
i samræmi við fyrri lið tillögu hennar á þingskj.. 166.
Einnig hefir nefndin tekið upp sumt af tillögum
hins l'rv. um breyting á bændaskólalögunum, þar sem
sumt af ‘þeim fer í líka átt og tillaga nefndarinnar
gerði.
Yfirleitt list nefndinni vel á liið nýja bændaskóla-
l’rumvarp og ekki sízt það, að auka á að mun verklega
lcennslu við skólana, frá því sem nú er. En betur má
ef duga skal í því efni, einkum er viðkemur staðgóðri
þekkingu til undirbúnings (héraðsráðunautastarfi að
námi loknu. Að því miða breytingartillögur nefndar-
innar, að úr því verði bætt.
En seinni liður tillögu á þingskj. 166 stendur óbreytt-
ur til afgreiðslu Búnaðarþings.
Nefndinni er vel ljóst, að verulegur kostnaður verður
fyrir ríkissjóð, að komið verði á framhalds búnaðar-
kennslu við Hvanneyrarskólann, en hinsvegar gerir
hún ráð fyrir, að varla verði hann eins mikill eins og
ef um erlent háskólanám væri að ræða, þótt ekki hafi
hún við raunverulegar tölur að styðjast i þessu efni.
Nefndin vill líka taka það fram, að hún álítur innlent
nám líklegra til góðs árangurs en háskólanám erlendis,
vegna þess, að smám saman sal'nast vísir að innlend-
um búvísindum og innl. reynslu á ýsmuin sviðum lil
stuðnings fyrir nám og leiðbeinandi menn í búnaði.
Þrátt fyrir þá skoðun, lýsir nefndin engu vantrausti
á erlendu búnaðarnámi, enda hafa ýmsir brauðtryðj-
endur og leiðbeinandi menn við ísl. búnað sótt menntun
sina lit úr landinu, og gefist samt mæta vel. En nú
ættum við helzt að fara að verða sjálfum okkur nógir
í jiessu efni, sem mörgu öðru.