Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 275
B Ú N A Ð A R R ] T
25,1
ert þeirra ná yfir minna svæði, en sem svarar einu
sýslufélagi, og hafa að minnsta kosti 500 kjósendur til
Búnaðarþings, er skiftin fara fram.“
7. gr. laganna orðist þannig:
„Hvert búnaðarsamband skal kjósa fulltrúa á Bún-
aðarþing. Tala búnaðarþingsfulltrúa fer eftir tölu kjós-
enda til Búnaðarþings, innan hvers sambands, þannig
að kosinn sé 1 fulltrúi fyrir bverja 500 kjósendur, og
ennfremur 1 fyrir brot úr þeirri tölu, sé það meira en
lý hennar, og jafnmarga til vara. Kosningin gildir til
4 ára. Á Búnaðarþingi eiga ennfremur sæti en ekki
atkvæðisrétt, stjórn félagsins og búnaðarmálastjóri.
Ráðunautar félagsins eiga þar tillögurétt og málfrelsi.
Búnaðarmálastjóri er ekki kjörgengur á Búnaðarþing.“
8. gr. laganna orðist þannig:
„Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir einir, sem eru
21 árs að aldri, eiga lögheimili á hlutaðeigandi sam-
lmndssvæði og uppfylla auk þess einhver þeirra skil-
yrða, sem talin eru upp í eftirtöldum stafliðum:
a. Þeir búendur er hafa jörð eða jarðarpart, sem met-
inn er til dýrleika, til eigin afnota.
b. Bústjórar, er annast búrekstur fyrir aðra, þar sein
eigendur gela ekki notað réttindi sín sjálfir, eða hafa
afsalaö sér þeim í hendur bústjóranum.
c. Leiðbeinandi menn, er bafa störf í þágu landbúnað-
arins að aðalatvinnu.
(I. Aðrir heimilisfeður, er framleiða laridbúnaðaraf-
urðir, er þeir hafa lífsframfæri af, að nokkru eða
öllu leyti, og nánar verður skilgreint í reglugerð.
Rétt lil að liera frarn kjörlista hafa minnst 40 kjós-
endur, og sé listinn lagður fram á aðalfundi búnaðar-
sambandsins. Sama rétt hefir Yi hluti fulltrúa á sam-
bandsfundi. Nú er enginn slíkur listi fram lagður á sam-
handsfundi, og skal þá fundririnn koma sér saman um