Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 283
B Ú N A Ð A R RIT
2(5:5
Laganefnd fékk erindi þetta til meðferðar og lagði
fram svoliljóðandi tillögu, sem var samþykkt með 11
samhlj. atkvæðum.
„Búnaðarþingið felur stjórn félagsins að fara þess á
leit við landbúnaðarnefnd neðri deildar Alþingis, að
hún á þingi því, er nú situr, flytji frumvarp þess efnis,
að styrkur til mjólkursamlaga og rjómabúa, er eigi
nemi lægri upphæð en % af stofnkostnaði þeirra, verði
lögfestur. Þó verði þess gætt, að aðeins þau mjólkur-
sarnlög og rjómabú verði styrkt, er ráðunautur ríkis-
stjórnarinnar í mjólkurmálum og Búnaðarfélag Islands
telja að liafi aðstöðu, er samrýmst getur að starl'-
semi þeirra verði rekin á eðlilegum og heilbrigðum
grundvelli“.
Mál nr. 39.
Tillögur um hýsingu sveitabæja.
Búnaðarþing 1935 skipaði þriggja manna milliþinga-
nefnd, sem meðal annars skyldi taka til athugunar,
hvað geia þyrfti til þess að hýsing á jörðum yrði bænd-
um ekki fjárhagsleg ofraun, en uppfyllti þó sjáfsögð-
ustu kröfur um varanleik og hagkvæmni.
Nefndin skilaði áliti um þetta efni til Búnaðarfélags
íslands, á miðju ári 1936, og er það prentað í 50. ár-
gangi Búnaðarritsins.
Laganefnd tók tillögur milliþinganefndarinnar til at-
hugunar og gerði við þær nokkrar breytingar, og fara
hér á eftir tillögurnar, eins og laganefnd lagði þær fvrir
og þingið samþykkti þær með 13 samhlj. atkvæðum.
Tillögur Milliþinganefndar Búnaðarþings 1935.
um lujsingu sveitabæja, ásamt bregtingum og við-
aukum Búnaðarþings 1937.
Það, sem Búnaðarþing leggur til, og telur að gera
þurfi, er í stuttu máli þetta: