Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 303
BÚNAÐARRIT
28Í5
kjörstjórn skriflega fyrir 5. marz, en fyrir 15. marz skulu
lcjörstjórnir hafa úrskurðað kæruatriði. Kjörskrá og
hreytingar á henni, er af þessu leiða, svo og aukakjör-
skrá yfir nýja félaga, sendist formanni búnaðarsam-
hands eigi síðar en 15. marz, enda getur enginn öðlast
atkvæðisrétt við þessar kosningar fyrir inngöngu í bún-
aðarfélag eftir þann tíma. Kjörskráin þannig breytt,
ásamt aukakjörskrá, gildir sem lcjörskrá við kosning-
una.
Engurn má leyfa að kjósa, sem ekki stendur á kjör-
skrá, og engum neita að kjósa, sein stendur þar.
Fyrir marzmánaðarlok skal formaður búnaðarsam-
bands senda öllum hreppabúnaðarfélögum skýrslu um,
hversu marga fulltrúa samband skal kjósa á Búnaðar-
þing.
14. gr.
Kosning hefst á hádegi kjördaginn ineð þvi, að for-
maður búnaðarfélags leggur fram fyrir kjörstjórn hinn
innsiglaða atkvæðaböggul, sem hann hefir fengið frá
formanni lninaðarsambands. Kjörstjórn skal athuga,
hvort innsigli böggulsins sé heilt og síðan telja atkvæða-
seðla og sannreyna, hvort talan kemur heim við skýrslu,
sem formaður búnaðarsambands skal láta fylgja at-
lcvæðabögglinum.
15. gr.
Kosning lil Búnaðarþings er leynileg og fer fram
eins og hlutbundnar kosningar til Alþingis, að því und-
anskildu, að atkvæðagreiðsla utan heimakjörstaðar á
sér ekki stað, og að kjósandi afhendir seðil sinn sam-
anbrotinn formanni kjörstjórnar, en hann lætur seðil-
inn þegar, án þess að fletta honum sundur, í stórt
umslag og gætir þess vandlega, meðan á kosningunni
stendur. Umslag þetta, ásamt frekari umbúnaði ef með
þarf, skal kjörstjórnin þegar að kosningu lokinni inn-
sigla á tryggilegan hátt, og senda svo skjótt sem við