Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 339
BtJNAÐ ARRIT
319
staðreynd að bæta einu einasta fóðurbirgðafélagi við
þau sein áður voru um þessar slóðir.
Mörg fleiri dæmi eru til, sem sýna að lítill skammtur
af eggjahvíturiku fóðri eykur svo notagildi lélegs hey-
fóðurs, að í reyndinni hefir það margfalt notagildi við
það sem næringarefnamagn þess lofaði. Þá kemur
þetta ekki síður fram ef þvílíkt kjarnfóður er gefið
með beit. Það er því hafið yfir allan efa, að kjarnfóður-
notkun horgar sig a»tíð ef það er notað af nægri
hagsýni.
Nii er það svo, að aðal kjarnfóðrið sem bændur nota
er sjófang, þorskalýsi og fiskimjöl einkum síldarmjöl.
Ijg nefni fyrr þorskalýsið, því það er mikið lengra
siðan farið var að nota það til fóðurs en fiskimjölið.
Upphaflega var lifrin gefin i hey, en nú orðið er það
lýsi se.m bændur kaupa, ef þeir útvega þetta loður.
Höfuðkostur lýsisins er, að það er auðugt af A lífefni,
en svo dýrt að ekki kemur til mála að gefa það vegna
næringar þeirrar sem er í feitinni, heldur aðeins til að
tryggja að skepnurnar vanti ekki A lífefnið, en til ]>ess
þarf lítið lýsismagn. Talið er t. d. að sauðkind þurfi
um 3 gr. á dag af þorskalýsi til þess að það gei'i henni
na'gilegt A lífefni hross um 10 gr. og hænsni um 0,15
gr. Nú er hey sjaldan svo illa farið, að það sé gersneytt
þessu dýrmæta efni, og sama er að segja úm heitina.
Er þetta ljóst af því að annars dæju skepnurnar út frá
þessu fóðri þegar á miðjum vetri ,ef ekkert væri gefið
með því. Til þess að tryggja skepnunum nægilegt af
]>essu dýrmæta efni þarf því ekki nema sáralítið af lýsi.
Sennilega nægði sauðkind ætið 2,5 gr. á dag og hross-
inu 5—8 gr. í 1(50 daga þyrfti þá 400 gr. á sauðkind og
i 120 daga þyrfti handa hesti 600—960 gr. Bezt er að
gefa lýsið svo, að bera það í fingert hey, sem sé svo
troðið fast í ilát að heyið þerri það í sig, og jafnast Iýsið
vcl ef lieyið geymist þannig í 1 eða 2 daga. Vilji hónd-
inn spara sér vinnu, þá er alveg skaðlaust að tvöfalda