Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 13

Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 13
19 11 — 1 9 3 6 VALUR 25 ÁRA 13 SÍRA FRIBRIK FRIÐRIKSSON: VALUR - Knattspyrnufélag K.F.U.M. „Valur“ hefur mælzt til þess að ég ritaði nokkrar línur í hátíða- rit félagsins út af 25 ára afmæli knattspyrnunnar innan K. F. U. M. Það er mér auðvitað ánægja, en mig liefur vantað tíma til þess sem eg helzt vildi, og svo liafa ýmsar ástæður valdið því, að ég á síðari árum hef ekki getað haft þau afskifti af þessari íþrótt, og starfi „Vals“, sem þurft hefði til þes að viðhalda hinni innri glóð og fögnuði, sem þarf að eiga sér stað, ef skrifa á með lífi og fjöri um slíkt menningarstarf, sem knattspyTnuíþróttin er og getur verið. Þrátt fyrir þetta get ég samt sem áður sagt, að ekkert hefur breyst í þeirri liugsjón, sem gjörði mér þessa íþrótt svo kæra. En ég hef lýst því svo oft áður, að ég hygg að ég geti litið annað skráð um þetta efni en upptekning á því, sem ég áður hef sagt i ræð- um og riti. í 25 ár hefur þá „Valur“ lifað frá þeirri stund er hinir fáu og ungu piltar tóku sig saman um að stofna þetta sérstarf í K. F. U. M. Tuttugu og fimm ár eru fljót að líða, en mikið getur gjörzt á einum aldarfjórðungi og margt breyst. Ætti engri kynslóð að vera það ljósara, en þeirri, sem kom- in var til vits og nokkurs þroska fyrir þeim 25 árum, sem nú eru liðin. Heimurinn hefur tekið svo miklum breytingum á þessum ár- um. Að knattspyrnu-íþróttin hef- ur haldið velli i þessi 25 ár, sýnir að hún hefur sitt verðmai’ti og gildi i sér sjálfri og gefur mér von um að liún geti verið, ef rétt er á haldið, eitt af þeim góðu öfl- um, sem verða samverkandi til þess að byggja hið nýja á rústum þess gamla. — Þess vegna hef ég enn þá sömu trú á þessari íþrótt og þá, er ég fékk fyrir nær 25 ár- um hið ógleymanlega kvöld, þeg- Síra Friðrik Friðriksson. ar augu mín opnuðust fyrir gildi hennar í þjónustu hins sígilda málefnis, kristindómsins, fyjrir æskuna. Það er mér og fleirum um að kenna að hún liefur ekki verið sú máttarstoð fyrir kristi- legum siðferðisþroska eins og þá vakti fyrir mér. — Eg hef lýst þessu svo opt að ég fer ekki hér að endurtaka það. Aðstaðan fyrir „Val“ hefur heldur iekki alt af verið góð og sér í lagi hefur það verið mikill hnekkir að geta ekki liaft vorn eigin leikvöll út af fyr- ir oss nú í mörg ár. Sömuleiðis liefur það einnig orðið til hnekk- is að húsnæðið í húsi KFUM hef- ir verið svo lítið að margar grein- ar félagsins liafa ekki getað haft þá umgengni í félagshúsinu, sem skyldi, og við það hafa einatt slíkar greinar komist í nokkra fjarlægð og samvinnan minkað við það. En þrátt fyrir alt þetta lief ég óhifanlega trú á að fram- tíðin heri betri kjör og kosti í skauti sér, til þess að þessi blóm- lega grein göfugrar íþróttar ekki þurfi að hverfa úr félagsstarfinu. Eg óska því einskis heitar en að aftur megi myndast sú samvinna, að „Valur“ verði að fullu það, sem honum var upprunalega ætlað, og allur andinn í samstarfinu verði þannig, að hið kristilega líf með- al ungra íþróttamanna megi auk- ast og eflast fyrir starf „Vals“ á komandi tíð. Trú mín á þýðingu knattspyrnuíþróttarinnar fyrir al- liliða þroskun ungra manna hef- ir ekki veiklast og er sú sama sem ég hef framsett í bæklingunnum „Úti og inni“, „Keppinautunum“, og í söngnum: „Gangið fram á svæðið sveinar“, — en það er komið undir oss, sem eigum að setja hinar háu hugsjónir í fram- kvæmd, hvort þessu takmarki verður náð. Það er þvi heillaósk mín á þessu 25 ára afmæli „Vals“, að þetta megi takast á komandi árum. — Guð blessi framtíð þessarar grein- ar á stofni KFUM! Fr. Friðriksson. Gangið fram á svæðið sveinar, senn mun byrja þessi hríð; mældar eru mönnum reinar, markið skín við djörfum lýð. Framherjanna’ á flýti reynir, framverðirnir hlífi’ ei sér, ef þeir verða alt of seinir, alt í handaskolum fer. Fram, fram, frækið lið! Fram, fram, sækið þið! Fram skal bruna og knöttinn knýja, komist fram hjá línum tveim, afturverðir ef dáð þá drýgja, dugið vel á móti þeim. Leikið saman og sætið færi, sendið knöttinn burt úr þöng, inn í markið ef hann bæri, óp þá hefjið snjöll og löng. Fr. Fr.

x

Valur 25 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valur 25 ára
https://timarit.is/publication/624

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.