Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 42

Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 42
42 VALUR 25 ÁRA 1911—1936 UTANFÖRIN 1935. Frh. af bls. 36. Frá Oslo til Kaupmannahafnar. Dagarnir hafa liðið hraðar en við vissum af. Það er kominn 28. júní. Jámhrautarlestin líður af stað áleiðis til Khafnar. Stöðugt sólskin og góðviðri gerði dvölina og landið fegurra og ógleyman- legra. Við kveðjum Noreg og Svi- þjóð tekur við, láglendari og gróðursælli og búsældarleg, með hálsum og hæðum, bændabýlum og þorpum. Eins og ormur skríð- ur lestin áfram, en staðnæmist öðru hvoru, þar sem fólk fer og kemur. Gautaborg er stærsti við- komustaðurinn á leiðinni, en við- dvölin er of stutt. Inn í ferjuna milli Helsingborgar og Helsingja- eyrar skríður lestin kl. 8 e. h. Til Kliafnar er komið kl. 10.10 e. h. Var þar forkunnarvel tekið á móti okkur af K.F.U.M.-vinum okkar frá 1931 og 1933. I húsi K.F.U.M. fór fram mót- tökusamsæti, þar sem form. K.F.U.M.s Boldklub bauð okkur hjartanlega velkomna, og mint- ist með hlýju og vinsemd Rvíkur og íslands, og þeirra daga, sem félag hans dvaldi hér 1933. Sv. Zoéga þakkaði með stuttri ræðu. Eftir að hafa móttekið prýðilega samið „prógram“ yfir dvölina i Höfn, og etið nægju okkar, var gengið til náða. Var búið um okk- ur í húsi K.F.U.M., og leið okk- ur þar ágætlega. Daginn eftir bauð H.I.K. okk- ur í dýragarðinn, sem er ógleym- anlegur, vegna tilbreytinganna í dýraríkinu, sem mönnunum hafði tekist að safna á einn stað, og samræma umhverfið eðli hinna „heitu“ og „köldu“ dýra. Á eftir er sest að kaffidrykkju í garðin- um sjálfum, og veitti H.I.K. Viggo Nielsen, einn af þátttak- endum K.F.U.M. Boldklub til ís- lands 1933, var sannkölluð leið- arstjarna okkar Valsmanna, með- an við dvöldum í Danmörku, hugulsamur og skemtilegur í hvi- vetna. Hann hafði samið hið ágæta „prógram“, og fylgdist með okkur allan tímann, ásamt Komelius Janson, prýðilegum félaga. Við eigum margar góðar endurminningar frá hinum frið- sæla og fullkomna leikvelli K.F. U.M. í Emdrup, þrátt fyrir tvo tapaða leiki. Hinn fyrri var á móti K.F.U.M.’s Boldklub, 4: 2, — þó gefur ekki rétta hugmynd um leikinn. Skotmenn okkar voru, eins og fyr, óvissir. í siðara skift- ið töpuðum við með 5: 3 móti K.F.U.M.’s Boldklub, H.I.K. og Thielsen úr A.B., sameinað lið. Þessi leikur var betri frá okkar hálfu, þótt mólherjar væru sterk- ari. Alstaðar mættum við vináttu og var farið með okkur eins og þjóðhöfðingja. Félagakvöldið, maður með manni, var skemtilegt og skapar nána kynningu; einmitt það hlutverk, sem þjóðirnar þurfa að vinna meira að til að komast nær hver annari með bróðurliug. Eftir kvöldið höfðu allir skemt sér best! Göngufedðin mn „Amalien- horgplads“, þar sem aðsetur kon- ungs Islands og Danmerkur, af guðs náð o. s. frv., er. Langalína og sjóleiðin til baka um spegil- sléttan sjávarflötinn. Grundtvigs- kirkjan, hið glæsilega „minnis- merki“. Ráðhúsið, með öllum þeim minjum, sem það hefir að geyma, ásamt útsýninu úr turn- inum yfir stærstu borg Norður- landa, í glaða sólskin.i Alt þetta veku'r þægilegar endurminning- ar svo árum skiftir. Sveinn Björnsson sendiherra hauð okkur heim til veislu. Var setið þar alllengi í góðu yfirlæti. Þakkaði Sveinn Zoéga fyrir Val með ræðu, en Viggo Nielsen fyr- ir K.F.U.M. Gáfum við svo þessu ágæta heimili, sem tekið liafði svo vel á móti olckur, „íslenskt húrra“, en sendiherra kvaddi okkur því næst með nokkrum hlýjum orðum og árnaði okkur allra heilla. Sívali turninn 35 m. hái, stiga- lausi og lyftulausi, en með hring- gangi upp, vakti athygli okkar. Thorvaldsen’s listasafnið, með öll sín listaverk, sem fá líf þegar á þau er horft, og hafa mál, þótt þau þegi, mótaðist í undirvitund okkar. „Glypothekið“, þetta tal- andi listanna tákn, frá gömlum og nýjum timum, gleymist seint. Um þessar mundir hélt K.F.U. M.’s Boldklub upp á 36 ára af- mæli sitt. Fór það fram í sumar- skála í Dyreliaven. Var Valur þar boðinn, en þvi miður var veðrið ekki gott, svo útiverunnar var ekki liægt að njóta, en þarna er mjög fagurt landslag. Samsætið var hið besta, og ræður fluttar og húrrað ýmist 4- eða 6-falt. Sátu hófið um 80 manns, og var áliðið kvölds, er komið var heim. — I Hróarskeldu hafði verið á- kveðið að leika, og var tækifærið notað til að skoða hina frægu dómkirkju, sem er ákaflega merkileg. Þar liggja i gröfum sín- um konungar Dana. Elsti liluti kirkjunnar er 700 ára gamall, en liún öll prýdd málverkum og höggmyndum. Kappleiknum lauk með jafntefli, 2: 2. Voru þessir leikmenn miklu liarðari en aðrir, er við höfðum mætt. Var þá kapp- leikunum lokið, 6 að tölu. Höfð- um við sett 12 mörk, en fengið 25. Okkur var boðið að sjá hinar stórfeldu „Tuborg“ ölverksmiðj- ur, og á eftir að smakka i rik- um mæli á framleiðslunni, i sam- komusal verksmiðjunnar. Þar voru þá fyrir 3 flokkar: frá Bandarikjunum, Skotlandi og Danir frá Suður-Jótlandi, og þeir fjórðu, sem settust að borðum í þetta sama sinn voru íslending- ar, og var óspart veitt, og meðan setið var að drykkju, var sýnd kvilcmynd. Þegar allir höfðu drukkið nægju sina, tóku flokk- arnir að syngja hver sinn þjóð- söng, eins og lil að kynna sig hver öðrum, og tókst okkur að vekja alveg sérstaka athygli á okkar söng, enda höfðum við góðum söngmönnum á að skipa, og lagið þekkja allir. Forstjóran- um, sem tók á móti okkur og kvaddi, gáfum við glaðvært,kröft- ugt islenskt húrra, svo og fylgd- armanni okkar. Á leiðinni heim var komið við í sundhöllinni og á leikvanginum (Stadion), sem hvorttveggja er mjög fullkomið.

x

Valur 25 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valur 25 ára
https://timarit.is/publication/624

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.