Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 20

Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 20
20 VALUR 25 ÁRA 19 11 — 1 9 3 6 irbúa ferðalag fyrir úrvalsflokk félag,sins og þá helst til Akur- eyrar og keppa við knattspyrnu- félögin þar. Knaltspyrnufélögin á Akur- eyri kváðust þess albúin, að taka á móti Valsungum, er norður lcæmi og sjá þeim fyrir fríu uppi- haldi þar. Var nú förin ákveðin, en æfingasókn varð með ágætum. Kátir og glaðir og fullir til- hlökkunar, lögðum við af stað, áleiðis til Akureyrar, á g.s. ís- land, að kvöldi hins 14. júní 1927. Við vorum 18 saman, 14 kapp- liðar úr 1. aldursflokki Vals, for- maður félagsins og fararstjóri Axel Gunnarsson, þjálfari flokks- ins, Guðm. H. Pétursson prentari og 2 ungir félagsmenn, er kosið liöfðu að eyða sumarfrii sínu með flokknum. Gekk ferðin vel, því veður var sæmilegt og skemtu menn sér eftir bestu föngum. Snemma morguns næsta dag var komið á Þingeyri. Var það svo árla morguns, að hinir svefn- þyngstu mistu af hinni fögru inn- siglingu. Voru nú allir ræstir út og haldið í land, því þar var iþróttavöllur grasi vaxinn, sem ekki mátti láta ónotaðan, því slík- ir voru ekki vellir þeir, er við kæmum til að keppa á, á Akur- eyri. Stóðst á endum viðdvöJ skipsins og æfingatími okkar og Norðurför 1927. félaginu vex ásmegin, og — úns allur heimurinn liggur að baki. Nú er ekki farið gangandi eða lijólandi. Nei, í hifreiðum, á skip- um og járnbrautum. Hringinn i kring um landið, milli landa og land úr landi. En tilgangurinn er liinn sami, aðeins fjölþættari og djúptækari. Seinni part sumars 1925 er æf- ingasvæði félagsins tekið af þvi, því þar á að reisa nýjan og full- kominn íþróttavöll lianda öllum bæjarbúum, í stað þess „gamla“, sem eyðilagðist að mestu í of- viðri næsta vetur á undan. Féllu æfingar að mestu niður það, sem eftir var sumars og byrjuðu ekki aftur fyr en að talsvert áliðnu sumri 1926. Varð þetta til þess að koma lainum mesta glundroða á æfingar Vals, enda lirakaði æf- ingasókn svo mjög, að til vand- ræða horfði. Stjórn Vals kunni illa slíkum afturkipp og hugði að, hvað til bóta mætti verða. Komst hún að þeirri niðurstöðu, að besta ráðið til að fá næga og stöðuga æfinga- sókn, væri sú, að ráðgera og und- Ferðalög eru Val í blóð borin. Fyrstu æfingar félagsins, það er að segja hinar fyrstu reglulegu æfingar þess, voru sameinaðar ferðalögum. Á hverjum sunnu- degi fóru hinir ungu og áhuga- sömu knattspyrnuiðkendur út úr bænum, þangað sem hægt var að finna sléttar flatir til að æfa á íþrótt þá, sem gripið hafði hugi þeirra svo föstum tökum. Oft- ast voru þó farnar stuttar ferðir, svo sem í Fífuhvamm. út á Seltjarnarnes og upp á Kóngsmel, en þess á milli lengra, t. d. að Lágafelli, í Marardal, í Hafnarfjörð og víðar. Þessi ferðalög héldust fyrst framan, þótt önnur verkefni og meiri væru í framkvæmd, eins og t. d. ruðningur „fótboltasvæðis“ á Melunum, og lögðust ekki nið- ur fyr en dofna tók yfir félags- lífinu í heild. Eða dofnaði félags- lífið máske eingöngu af því, að ferðalög þessi lögðust niður? Ef til vill, ef til vill ekki. En eitt er víst, að með lifnandi félagslífi og fjöri hefjast ferðalögin á ný. En nú eru tímarnir aðrir. Hin- ar „stuttu“ ferðir, upp að Kolvið- arhól, á Hengil og í Marardal eða austur í Þrastaskóg, fullnægja ekki lengur hinum ötulu og fram- gjömu Valsungum eða útþrá þeirra. Nú skal haldið lengra, lengra og lengra, eftir því sem 1. flokkur 1927.

x

Valur 25 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valur 25 ára
https://timarit.is/publication/624

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.