Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Blaðsíða 67

Morgunn - 01.12.1946, Blaðsíða 67
MORGUNN 137 og margir án þess að hafa skilyrði til þess. Ég veit, að til eru menn, sem geta sagt fyrir óorðna atburði, menn, sem sjá atvik, sem eru að gerast langt í burtu, einnig stund- um það, sem gerzt hefur fyrir langa löngu, — og þekkt hef ég þá, sem séð hafa hluti, jafnvel smáhluti, sem týnzt hafa og eru í mikilli fjarlægð. Ég veit, að menn hafa séð, að hreyfðir hafa verið allstórir og þungir munir, án þess að nokkur kæmi við þá og án þess að þeir væru færðir til af nokkru því afli, sem við þekkjum. Þá hef ég fengið óyggjandi sannanir fyrir hugorku og hugsanaflutningi. Loks veit ég, að menn hafa séð svipi manna og dýra, og þó að ég hafi verið sjaldgæfur gestur á miðilsfundum, hef ég komizt þar að raun um furðu merkileg atriði. T. d. hefur miðill talað fyrir munn látins ættingja míns og fé- laga, og sá hinn sami minnt mig á nokkur smáatvik frá bernskuárunum, sem öll eru þannig, að við vissum einir um þau, og sum þeirra voru orðin svo djúpt grafin í minni mér, að ég þurfti umhugsun, upprifjun og aðstoð þess, er talaði, til að minnast þeirra. Þá skal þess að lokum getið, að sum þeirra, þótt smávægileg væru, voru sér- staks eðlis. Ef segja skal, að þarna hafi ekki sá látni ver- ið, svo sem sagt var af munni miðilsins, þá hafi miðillinn þó að minnsta kosti verið gæddur furðulegri gáfu til að lesa í hug mér, draga þar fram löngu gleymd atvik og velja þau þannig, að þau væru frá mínu sjónarmiði sem líklegust til að hafa nokkurt sönnunargildi. Sjálfsagt hef ég reynt eða komizt að af frásögn annarra miklu fleiri tegundum dularfullra fyrirbrigða en hér eru taldar, þó að ég hirði ekki um að benda á fleiri, en svo er annað atriði málsins og því er iðulega ruglað saman við hitt, en þar á ég við orsakirnar til hinna dularfullu fyrirbrigða, hvern- ig er þessu eða hinu varið, hvaða öfl eru að verki í sam- bandi við þetta eða hitt? Þar vil ég yfirleitt forðast all- ar fullyrðingar, vel þess vitandi, hve þekking mín og rök- skynjun nær óendanlega stutt. Og einmitt deilurnar um orsakirnar hcifa mér stundum virzt ekki ólíkar því, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.