Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 16

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 16
10 Jón A. Hjaltalín. IÐUNN Þeir voru vanalega komnir frá sveiiaheimilum og vanir sfrangri vinnu, en höfðu brennandi löngun til að afla sér fróðleihs. Þessum mönnum var vitanlega gott að stjórna, þó þeir stundum væru nokkuð háværir og hver vildi af kappi halda fram sínum málsstað, eins og títt er um Islendinga. En Hjaltalín hafði líka framúrskarandi stjórnarhæfileika. Hann þurfti sjaldan að vanda um við lærisveina sína. Það var eitthvað í svip hans, sem var þess valdandi, að menn hlýddu honum skilyrðislaust. Mér er það minnisstætt, að oft voru tuttugu eða þrjátíu piltar í áflogum á göngum skólans, en ef við heyrðum þunga og hæga fótatakið skólameistarans, þá sló öllu í þögn. Það var nóg að menn vissu, að hann var nálægur, þá urðu jafnvel verstu óróaseggirnir stiltir. Hjaltalín var mannþekkjari mikill og var fljótur að sjá hvað í mönnum bjó. Hann gat verið harður og óvæginn við þá menn, er ekki voru að hans skapi, en yfirleitt treysti hann á drengskap pilta og bar traust til sannsögli þeirra. Hann trúði jafnan orðum þeirra og var ekki laust við, að sumum bætti það um of, en þess verður að gæta, að það var ekki meðfæri ungra manna, að standa frammi fyrir Hjaltalín og segja ósatt. Til þess var svipur hans of harður og strangur. Ekki tók hann hart á yfirsjónum pilta, og ef þeir sögðu honum satt og rétt frá málavöxtum, var fyrirgefningin vís. Sannsögli og drengskap unni hann öllu öðru fremur. Enginn hlutur var honum fjær skapi, en að vera að gefa Iærisveinum nótur og athugasemdir. Honum var það auðvitað metn- aðarmál, að lærisveinar hans stæðu sig vel, en þó munu þeir menn oft hafa verið honum kærastir, sem ekki voru mestu námsmennirnir. Það var sagt um Hjaltalín, er hann andaðist, að hann hefði ekki bundið námið við ákveðið blaðsíðutal, heldur

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.