Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 21

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 21
IÐUNN Jón A. Hjaltalín. 15 þeir hefðu ekki verið samtímis á Möðruvöllum, mundi skólinn hafa fengið annan blæ. Hjaltalín var meðalmaður á hæð, en þrekinn og sam- anrekinn og karlmenni til burða. Hann var vel limaður, handsmár og fótsmár, en varð ofholda með aldrinum. Hann var sviphreinn og mikilúðlegur, fasteygur og nokkuð kuldalegur í viðmóti. Mynd sú er hér fylgir var tekin af honum árið áður en hann andaðist. Hann unni íþróttum og allri karlmannlegri atgervi. Einkum voru það hinar fornu íslenzku íþróttir, sem hann dáðist að, en litla trú hafði hann á útlendum íþróttum og eink- um á leikfimi, og taldi hana óþarfa nýjabrum. »Væri nær að fara í glímu, en vera að þessu hoppi«, sagði hann eitt sinn. Hann var íhaldssamur í þessu, eins og mörgu öðru. Hjaltalín var oftast alvörugefinn og fámáll. Stundum jafnvel kaldur og lítt aðlaðandi, en í aðra röndina var hann þó gleðimaður mikill, og sló ekki hendinni við gæðum lífsins. Hann var gestrisinn og hafði yndi af að sitja að samdrykkju með kunningjum sínum. Þó var hann ekki drykkjumaður og vanrækti aldrei störf sín af þeim ástæðum. Hann var hestamaður mikill. Átti jafnan góða reiðhesta, og ól þá upp sjálfur. Fremur var hann einmana maður, að minsta kosti hin síðari ár æfi sinnar. Hann sóttist lítt eftir vináttu annara, og átti fáa vini, en var tryggur sem tröll, þar sem hann tók því. Honum líkaði illa tápleysi og veik- lyndi og hataði allan losarabrzg í hverju sem hann lýsti sér. Hann var ákveðinn íhaldsmaður í skoðunum og fór ekki dult með það. Taldi hann sér það til gildis. Þetta átti þó ekki við alstaðar. í stjórnmálum var hann frjáls- lyndari en margir samtímamenn hans. Hann var þjóð- rækinn og einlægur ættjarðarvinur, en eins og vænta

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.