Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 23

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 23
IÐUNN ]ón A. Hjaltalín. 17 því stjórnarskrárfrumvarpi, sem stjórnin var fylgjandi. Sama gerði líka annar konungkjörinn þingmaður, Lárus Sveinbjörnsson. Stjórnin hefndi sín með því að endur- skipa hvorugan þeirra til þingsetu. Hjaltalín fylgdi Heimastjórnarflokknum í flestum mál- um, en var þó ekki allskostar ánægður með flokkinn. Enda mun hann hafa átt erfitt með að beygja sig undir flokksaga. Til þess var hann of geðríkur og einstakl- ingseðlið of sterkt. Ekki getur Hjaltalín talist mikill rithöfundur, en þó liggur talsvert eftir hann á prenti. Aðalverk hans er hin mikla enska bókaskrá, en auk hennar er þetta hið helzta: Ensk lestrarbók. Rvk. 1897. Ensk lestrarbók meö málfræöi og orðasafni. Ak. 1882. OrÖasafn íslenzkt og enskt. Rvk. 1883. Hvernig er oss stjórnað? Rvk. 1889. Nokkur orö um hreínlæti. Kbh. 1867. An Icelander’s Notes on Iceland. Ln. 1870. Hann skrifaði margar blaðagreinar og samdi skýrslur Möðruvallaskólans 1880—1908. Ennfremur skrifaði hann talsvert í ensk blöð og tímarit. Hann þýddi hluta af Orkneyingasögu á ensku, en á íslenzku þýddi hann þessar bækur eftir Swedenborg: Vísdómur englanna. Kbh. 1869. Kenning hinnar nýju Jerúsalem um kærleik- ann. N. V. 1899. Um hina nýju Jerúsalem. N. V. 1899. Margt af þessu er nú orðið úrelt, eins og eðlilegt er með kenslubækur, enda er það ekki sem rithöfundur að Hjaltalín hefir hlotið frægð sína, en sem kennari, skóla- stjóri og maður mun hann seint gleymast þeim, er hon- um kyntust. M. H. Iðunn XI.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.