Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 60
54 Jólaminning. IÐUNN komist undir manna hendur áður en þau náðu full- um þroska. Einn jóladaginn fór eg, ásamt mörgu fólki öðru, kynn- isferð til Vengarn. Okkur var tekið báðum höndum. Það vildi líka svo vel til, að ein stúlkan frá Sigtúnum átti unnusta í Vengarn, og hann sýndi okkur alt það, sem hann hélt að við hefðum gaman af að sjá. Þarna í Vengarn eru tvær miklar hallir úr steini. Það er aðalshöllin gamla og þar býr forstöðumaður stofn- unarinnar og eitthvað fleira af starfsfólki. Höllinni hafði verið lítið sem ekki breytt, og þótti mér sem það mundi vera glæsilegri bústaður en hvað hann var þægilegur. Þó mátti sjá það hér sem víðar, hvað Svíanum var lagið, að gera gott úr hverjum hlut. í hinni höllinni var íbúð glæpamannanna ungu og svo þeirra, er höfðu nán- ast eftirlit með þeim. Það var geysimikið hús með mörg- um vistarverum, skólastofum og handiðnarverkstæðum. Úti fyrir voru miklir leikvellir, og meðan við dvöldum þarna, voru piltarnir þar að leikjum. Annaðhvort var, að eg sá engan þeirra inni, eða eg hefi þá gleymt þeim að fullu. Þessi stofnun er á allan hátt merkileg. Hér er með uppeldi, handleiðslu og umönnun verið að reisa þá á fætur og hjálpa á legg, sem bágast eiga og mestrar hjálpar þurfa við. Svo sjálfsagt sem það virðist vera, að skoða allflesta unga glæpamenn sem hjálparþurfa vesa- linga, er þessi tilraun að veita þeim siðaðra manna upp- eldi þó harla sérstæð. Eg hafði áður haft lítilsháttar kynni af forstöðumanninum, hafði heyrt hann prédika í Sigtúna-kapellunni, og mér hafði vaxið hann í augum, drengileikur hans og áræði í hugsun og einlægni í fram- setningu. Nú óx mér það í augum, hve hér var djarft stefnt og hversu hér var öllu haglega raðað til að ná fram að markinu.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.