Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 78

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 78
72 Georg Brandes. IÐUNN unum og yfir hugum mannanna. Hér vildi hann byggja háan turn og tendra voldugan vita, er lýst gæti langa vegu. Þetta hafði hann einsett sér, jafnvel þótt það yrði að gerast í trássi við guð og góða menn. Hann gerði það, og verk hans mun varpa endurskini yfir aldir. En mótspyrnan gegn Brandes rann líka af öðrum rótum og virðingarverðari en hér hafa verið taldar. Hún átti eina meginrót sína í ólíkum lífsskoðunum og lífs- stefnum. Þótt Brandes væri afburðamaður á vissum sviðum, var honum ekki, fremur en öðrum dauðlegum mönnum, gefið það, að mega ráða rök allrar tilveru. Hann var einhæfur nokkuð, en þó engan veginn sá neikvæði niðurrifsmaður og spellvirki, er sumir andstæð- ingar hans vildu vera láta. Eins og hann kemur fram í starfi sínu var hann raunhyggjumaður í hverja taug, talsmaður mannvitsins og einstaklingshyggjunnar. En getur vitsmunaþroskinn einn frelsað heiminn? Verða lífsgáturnar ráðnar fyrir mátt hvassrar hugsunar eða við sundurliðandi skýringu allra hluta? Um það má deila og verður vafalaust deilt um ókomnar aldir. A síðari tímum hefir allmjög bólað á andófi gegn lífsstefnu þeirri, er Brandes var svo snjall talsmaður fyrir. Ekkert er eðlilegra. Heimurinn stendur ekki í stað. Það er engum af oss gefið að kveða upp úrslitadóminn. Og sá maður, er gerði orðin: frjáls rannsókn að herópi sínu og megin- kröfu, mundi verða manna síðastur til að heimta að fá að setja hinn mikla lokapunkt. Lífið er hraðfleygur straumur; þróunin nemur ekki staðar. Sá er einhverju vill til leiðar koma í þessum heimi hlýtur að bjóða þeim, sem taka við af honum: Afneitið mér, ef þess er þörf! Troðið mig fótum, ef eg hindra ferð ykkar! Þið eigið lengra að halda. Hið andlega bú Brandesar mun verða gert upp á

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.