Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 28

Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 28
26 Kvenfélagsstarfsemi frá ýmsum hliðum Erindi fiutt að Gimli, á fundi “Hins Sameinaða Kvenfélags” 19. júní, 1926 Eftir Kirstínu H. Olafson I’að er góður, gildur og margreyndur siður, að byrja ræður með afsökunum, og ekki vil eg hætta á að eyðileggja erindi mitt þegar í byrjun, með því að víkja frá svo vel viðtekinni meginreglu; og það því fremur sem hór er ástæða til að biðja afsökunar. Eg er komin hér fram á ræðupallinn fremur af vilja til að leggja lið málum þeiin er þing þetta hefir til meðferðar, en af því eg geri mér von um að hafa mátt til að afkasta nokkru verulegu. Ekki flyt eg nein nýmæli. Ekki á eg yfir að ráða mælsku, orðsnild né kunnáttu í þeirri fögru list að halda ræður, og ekki liel'i eg þá reynslu í starfs- málum kveníelaganna að eg geti um þau talað af myndugleik. Það eina sem eg get talið erindi mínu til gildis, er það, að það er fram borið af einlægum áhuga fyrir vell'erð lcvenfélaganna. Treysti eg velvild ykkar félagssystra minna ineð að taka viljann fyrir verkið, að afsaka alla galla, og el' nokkur nýtileg hugmynd kemur fram, að hirða hana, hhia að henni, og nota hana á sem hagkvæmastan hátt. Það er alkunnugt, að þegar í fyrstu kristni, tóku konur mikinn og ákveðinn þátt i kristilegri félagsstarfsemi. Sérstaklega er þess getið að þær tóku drjúgan þátt i fjárframlögum og í líknarstarf- semi. Finst mér hér liggja fyrir bein skyldukvöð til kvenna vorra tíma að taka sér fyrir ákveðið verk á jiessum sviðum sem sönnun fyrir því að konur vorar af íslenzku bergi brotnar hafi skilið köllun sína til líknarstarfsins, og rætt hana. Vil eg aðeins benda á eitt dæmi—gamalmennaheimilið “Betel.” Er það einn af fegurstu ávöxtunum sem sprottið hafa upp af líknarstörfum kvenfélaganna, og svo augljós, að ekki þarf að víkja að þeirri grein starfsins aftur. Fram að þeiin tima er útflutningar frá íslandi hófust til Vestur- heims, hafði íslenzka kvenþjóðin ekki tekið mikinn þátt í félagslífi landsins. Þó voru konur vorar ekki lengi að átta sig á því er þær komu til jiessa lands, að þær ættu að taka ákveðinn jiátt í félags- lífi bygðanna er þær settust að í. Þcss vegna voru kvenfélögin stofn- uð. f flestum bygðum islenzkum munu kvenfélögin vera nálega jafn gömul bygðunum, eða að minsta kosti nærri jafnaldra söfnuð- unum er þau tilheyra. Kvenfélag jiað sem eg tilheyri, mun vera eitt af elztu kven- félögunum islenzku, og þó það væri ekki upphaflega stofnað sem safnaðarkvenfélag, hefir það jafnan starfað með og fyrir söfnuðinn. í grundvallarlögum jiess er það tekið fram, að verkefni þess skuli vera jiað, að bæta hugsunarhátt, hækka siðferðiskröfur, og vinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.