Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 35

Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 35
33 uð á leið.” Þess vegna megum við ekki gera okkur ánægðar með að hjakka í sama farinu, heldur notfæra okkur það tækifæri til framfara sem sambandið getur haft í för með sér. Hver sú mann- eskja sem starfar, hlýtur að liafa persónulega reynslu fyrir því að “margar hendur vinna létt verk.” Því skyldi ])á ekki samband fél- aganna hljóta að lyfta undir með starf vort. Annað máltæki segir: “Enginn má við margnum.” Sá sannleikur gefur góða ástæðu fyrir því að kvenfélögin öll í sameiningu leggist á eina sveifina með að koma hugsjónum sínum á framfæri. Aðal gagnsemi sambandsins myndi þá koma frá þingum þess, sem ákveðin hafa verið í sambandi við kirkjuþingin. Þau þing gætu orðið til mestu uppbyggingar, og regluleg uppspretta heilnæmra andans strauma, sem erindrekar myndu flytja hver heim til sín, svo framarlega sem við allar vinnum að því af lífs og sálar kröftum. Eitt verðum við að taka til greina. Það er okkar eigin með- fæddi og sífylgjandi ófullkomleiki. Margt gott verk hefir verið byrjað, en orðið til Htils gangs, af því skarpskygni, fyrirhyggju, dugnað og einbeitni hefir vantað til að leiða það l'arsællega til lykta. Því er ver, við megum Hklegast búast við að stundum snúist járnið í hendi okkar, svo að árangur vinnu vorrar verði hvorki eins glæsilegur né eins mikill og við hefðum óskað. Samt megurn við ekki undir neinum kringumstæðum reynast hugsjónum vorum ótrú- ar með því að gefast upp. Mig langar að segja frá ofurlitlu atviki. Það hefir lengi verið ein af vonum mínum að drengirnir mínir yrðu söngmenn. En ennþá hefir ekki borið á sönghæfileikum hjá neinum þeirra. Einn góðan veðurdag vorum við við messu og þeir drengirnir, sem læsir eru, höfðu sálmabækur sínar að vanda, og fylgdust með orðunum. Heyrði eg ])á alt í einu að einn þeirra er farinn að syngja hátt, en af töluvert meiri áhuga en list. Ekki skal eg ábyrgjast að hann hafi náð laginu rétt, en þó svo, að vel mátti heyra hvað liann var að fara. Hve fagurlega þessi tilraun hans, þó hjáróma væri, hljóm- aði í eyrum mér get eg ekki lýst, né hvað mikið hún gladdi mig. Datt mér þá í hug: Máske Drottinn sjálfur gleðjist svona, þegar hann sér einlæga viðleitni barna sinna að gera hans vilja, hversu ófullkomin sem sú viðleitni lcann að vera. f þvi trausti að svo sé skulum við, Hin Sameinuðu Kvenfélög, hiklaust taka okkur fyrir ákveðið verk i víngarði hans, halda okkur að því án sérhlífni, og íela honum árangurinn með þcssi bænarorð i huga. Gef mín störf til góðs æ leiði, gef þau út þitt ríki breiði. Þökk fyrir góða áheyrn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.