Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 38

Árdís - 01.01.1933, Blaðsíða 38
30 óþektar heimsálfur. Það er forvitni, sem leiðir vísindamenn og upp- fyndingamenn til frægðar og frama; en vandfarið er með að hún leiði i rétta átt. Þú mátt hreint ekki fyrirbjóða barninu að lít.a inn í skáp- inn. Með því ert þú að hvetja það til að grenslast eftir hvað í skápn- um sé. Þú verður að sannfæra það annaðhvort um það, að skápurinn sé tómur eða að þar sé ekkert, sem geri honum nokkuð gott. Heim- urinn á svo marga merkilega skápa. Og eg fullyrði að margir litlir drengir og stórir drengir líka, hafa liðið skipbrot sökum þess að þeim var fyrirboðið að líta í eitthvað af þessum skápum. “Líttu ekki á skápinn!” “Hugsaðu ekki um skápinn” og “lestu ekkert um skáp- inn,” hrópum við, þar til þeir eru orðnir svo forvitnir að hugurinn er fullur af uinhugsun um skápinn og þeir hafa ákveðið að kynna sér alt sem hann hefir að geyma.—Trúið mér, að hin leyndardómsfulla list að leiðbeina hinum unga, er í því fólgin, að kenna þeim á réttan hátt það sem þeir þurfa að vita um alla hina merkilegu skápa. Hið sama mætti segja um framgirni barnsins. Hann þráir að skara fram úr, litli drengurinn þinn; hann vill vinna sigur. Foreldrar hans mega ekki liæla niður þá tilfinningu, þurfa heldur að leggja rækt við hana. Þeir verða að beina huga hans til hæðanna, sem mest er varið í að klifra. Benda á takmarkíð, sem hann þarf að stefna að, sýna honum verðlaunin, sem dýrmætust eru. Legðu rækt við ímyndunaraflið. Það er undursamlegt hvað litill drengur getur imyndað sér: Hver klettur og hver gjá er full af undra verum, ekki að óttast alt það hugsanaflug; það er Guð að tala við barnssálina. Gerðu þitt til að það inegi haldast sem lengst. Hugsum okkur hve ósegjanlega mikið fullkomnari þessi heimur væri, ef þar væri ineira ímyndunarafl starfandi. Ef við, sem prédik- um, ættum meira af þessum eiginlegleika barnsins, þá næðum við betur til þeirra, sem við tölum við og gætum sagt fleira sem hjálpaði þeim. Hér hefi eg þá lýst drengnum þínum, litla barninu, scm lifir. Gleymdu því ekki að hann samanstendur af þessu þrennu: forvitni, framgirni, og ímyndunaral'li. Takist þér að eyðileggja forvitni hans verður hann kaldur og kærulaus og kærir sig ekkert um að auka þekkingu sína. Iif þú eyðileggur framþrá hans, máttu eiga það víst að hann eyðir tíma sínum i iðjuleysi, stendur með hendur í vösum á götuhornum. El' þú eyðileggur imyndunarafl hans hefir ]iú gert honum ómögulegt að leiða samtíð sina á fegurri og bjartari brautir. Þið forehlrar, sem því láni eigið að l'agna að þetta litla barn hafi tekið bústað hjá ykkur, ]>ið eigið mikið að þakka. Þið hafið reynt sælu himnaríkis, en gleymið ]iví ekki að mikil ábijrgð fylgir þeirri sæln. IV. Aðeins eitt herbergi er eftir, það heitir “Von”. Það snýr inóti austri; morgunsólin skin þar, geislar hennar vefja alt í draumkendri fegurð.—Þarna sefur fjórða barnið: “litla barnið sem koma á.” Yndislegt barn er það, þetta litla barn, sem á að koma!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.