Birtingur - 01.04.1956, Side 37

Birtingur - 01.04.1956, Side 37
svo var það hann Axel, og hann var trésmið- ur inni í borginni, og hann var giftur og þau áttu sjö börn, og hið yngsta fæddist eftir að Axel var dáinn og það dó fyrst. Síðan dóu tvö í viðbót, og svo dó hún Fríða, tengda- dóttir mín, og síðan dóu önnur tvö, og þá voru tvö eftir, og þau fengu að lifa. Og af börnunum mínum er bara hann Georg pabbi þinn á lífi, og hún Elsa sem er gift í Sunds- vall, og svo er það hún Anna, og hún er í Ameríku, það veiztu. Svona var það með þau. Tæringin varð þeim öllum að bana. Ég hugsa svo oft um hvernig þeim muni líða núna, og hvort ég muni hitta þau þegar ég verð ferjuð yfir sundið. Ég hefði gaman af að sjá þau aftur. Mér hefði aldrei dottið í hug, þegar ég gift- ist honum Tómasi, að þau myndu deyja svona frá okkur, en svona fór nú það. Og ekki skil ég hvaðan þessi óþverri kom, því aldrei hef ég haft tæringu, og ekki dó hann Tómas held- ur af tæringu, því hann sleit sér út við skóg- arhöggið, það held ég. Hann sleit sér út við skógarhöggið fyrir tvær krónur á dag, og það var reyndar ekki afleitt, því til voru þeir sem fengu minna. Og þó var alltaf þröngt í búi hjá okkur, sérstaklega meðan hann Mylkir lifði, því hann þurfti svo ótrúlega mikið að borða. Og þó dó hann þegar hann var lítill. En flestir deyja nú úr tæringu, eins og þú veizt. Svo það er varla hættulegt með löpp- ina á mér. Þó að mig sé farið að verkja svo skrambi mikið í hana upp á síðkastið. En ég held maður verði þó að vona að maður eigi eftir að gera eitthvað til gagns hér í lífinu. 35

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.