Ritmennt - 01.01.2005, Page 68

Ritmennt - 01.01.2005, Page 68
ÁRMANN JAKOBSSON RITMENNT ar við táknrænt gildi munnsins, merkingu hans og hlutverk í einni stuttri frásögn í konungasagnaritinu Morkinskinnu sem að minni hyggju var sett saman snemma á 13. öld, en Morkinskinna er um margt sambærileg Heimskringlu þó að ólík séu verkin.4 Við fyrstu sýn virðist munnurinn ekki jafn virðulegur og ýmsir aðrir líkamshlut- ar. Hendur eru algeng tákn um styrk, og augun eru stundum kölluð spegill sálarinn- ar. Munnurinn leiðir á hinn bóginn ekki að sálinni heldur niður í maga, og eitt mikil- vægasta hlutverk hans er enda að innbyrða mat. Þannig virðist munnurinn fremur hafa líkamlegt en andlegt gildi. Hinu má þó elcki gleyma að munnurinn hefur grundvall- armerkingu í sjálfsskilningi mannsins sem vitsmunaveru. í munninum eru talfærin, og málið er það sem skilur manninn frá öðrum dýrum og gerir hann siðfágaðan. Munnurinn er ef til vill ekki mjög flókinn í sjálfu sér, miðað við þær flækjur sem tal- færin geta búið til í tungumálinu. Fjölbreytt og þversagnakennt hlutverk hans í mann- legu samfélagi er aftur á móti þeim mun áhugaverðara, það sem kalla mætti „hinn menningarlega munn".5 Ef við ímynduðum okkur kvarða sem liggur frá frumstæðni til fágunar (eða frá dýrinu til mannsins) og reyndum að raða þar líkamshlutum manns- ins á mætti staðsetja munninn á báðum endum þess kvarða og af þeim sökum einum getur munnurinn verið viðsjárvert sagnaminni í frásögn.6 Það blasir við að munnurinn er afar mik- ilvægur skáldum og norrænir menn hafa gert sér grein fyrir því. Hið fjölbreytta eðli munnsins kemur skýrt fram í goðsögn- inni um skáldskaparmjöðinn eins og hún birtist okkur í Eddu Snorra Sturlusonar.7 I þeirri goðsögn sameinast hið andlega og lík- amlega á sérlcennilegan hátt þar sem Oðinn bæði drekkur mjöðinn og skilar honurn út um líltamsop beggja enda líltamans. Með þessu upphefur hann andstæður hins fágaða og hins grófa, drykkju og kveðskapar sem sameinast í þessari goðsögn. Víða í norræn- um textum má svo finna vísanir til þessarar sagnar, ekki síst þó í Egils sögu, en Egill er ekki aðeins gjarn á að yrkja heldur einnig að æla úr sér miði.8 Vera kann að goðsögnin um skáldamjöðinn sé innblástur þeirrar frásagnar sem hér verður vikið nánar að. Eg átta mig þó ekki til 4 Það væri í of mikið lagt að gera hér rækilega grein fyrir Morkinskinnu og uppruna hennar, enda hefur hann verið umdeildur. Þess í stað vísast til nýlegrar bókar minnar um hana (Árrnann Jakobsson, Staður í nýjum heimi. Konungasagan Morkinskinna. Reykjavík 2002|. 5 Maud Ellmann hefur bent á margrætt tákngildi munns og matar í ágætri bók um fólk sem afneitar honum (The Hunger Artists: Starving, Writing & Imprisonment. London 1993, bls. 112). 6 Mannfræðingurinn Claude Lévi-Strauss notaði eins og alkunna er afstöðu til matar og einkum mun þess hráa og soðna til að hlutgera grundvallarand- stæður náttúru og siðmenningar sem honum voru hugleiknar (sjá ekki síst The Raw and the Cooked: Introduction to a Science of Mythology I. John og Doreen Weightman þýddu. New York 1969, frum- útg. Le Cru et le Cuit, 1964). 7 Edda Snorra Sturlusonar, bls. 82-85. 8 Umfjöllun um þetta efni krefst rækilegri köfunar en svo að unnt sé að ræða það í framhjáhlaupi. Carol Clover hefur rætt þetta og tekið saman mörg dæmi um skáld sem nota kenningar um að skáldskapar- mjöðurinn gangi fram af munni þeirra („Skaldic Sensibility," Arkiv för nordisk filologi 93 (1978), bls. 63-81. Jón Hnefill Aðalsteinsson minnist einn- ig á þetta í nýlegri bók („Trúarhugmyndir í Sona- torreki." Studia Islandica 57. Reykjavík 2001, bls. 74). 64
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.