Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 41

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 41
• Oxýtósín: við 15-30°C, má ekki frjósa. • Veita skal ráðgjöf um aukaverkanir þessara lyfja. Varúð! Ekki á að gefa konum með meðgöngueitrun, fæðingarkrampa eða háan blóðþrýsting ergometrín eða Syntometrine® (inniheldur ergó- metrín). Hvernig á að beita stjórn- uðu naflastrengstogi? • Klemmið naflastrenginn nálægt spöng (þegar æðasláttur stöðvast í naflastreng heilbrigðs nýbura) og haldið í hann með annarri hendi. • Setjið hina hendina rétt ofan við líf- bein konunnar og haldið leginu stöð- ugu með því að beita mótþrýstingi upp á við meðan togað er í nafla- strenginn. * Haldið vægri spennu á naflastrengn- um og bíðið eftir sterkum samdrætti í leginu (eftir 2-3 mínútur). * Þegar sterkur samdráttur finnst þarf að hvetja móðurina til að rembast og toga mjög gætilega í naflastrenginn, niður á við svo fýlgjan fæðist. Hald- ið áfram að beita mótþrýstingi á leg- ið. * Ef fylgjan kemur ekki niður á meðan á 30-40 sekúndna stjómuðu nafla- strengstogi stendur, á ekki að halda áfram að toga í naflastrenginn held- ur: • Haldið mjúklega í naflastrenginn og bíðið þar til legið dregst vel saman aftur. • Endurtakið stjórnað naflastrengs- tog með mótþrýstingi í næsta samdrætti. Notið aldrei naflastrengstog án þess að beita mótþrýst- ingi fyrir ofan lífbeinið á vel samandregið leg (toga og ýta) • Þegar fylgjan fæðist, haldið um fylgjuna með báðum höndum og snúið henni varlega þar til snýst upp á belgina. Togið varlega til að ljúka fæðingu fýlgjunnar. • Ef belgirnir rifna, skoðið efri hluta legganganna og leghálsinn varlega með dauðhreinsuðum/sótthreinsuð- um hönskum og notið túffutangir til að fjarlægja alla belghluta sem næst • Skoðið fylgjuna vandlega til að vera viss um að ekkert af henni vanti. Ef hluta yfirborðsins vantar eða á henni eru rifnir belgir með æðum, gerið ráð fyrir að fylgjuleifar hafi orðið eftir og grípið til viðeigandi ráðstaf- ana til að staðfesta að leghol sé tómt. Hvernig beita á legnuddi • Nuddið samstundis legbotninn þar til legið er samandregið. • Þreifið til að finna hvort samdráttur sé í legi á 15 mínútna fresti og end- urtakið legnudd eftir þörfum fyrstu 2 klukkustundirnar eftir fæðingu. • Gangið úr skugga um að legið verði ekki slakt (mjúkt) eftir að nuddinu er hætt. Við allar ofangreindar aðgerðir þarf að útskýra aðferðir og aðgerð- irnar fyrir konunni og viðstöddum stuðningsaðila/fjölskyldumeðlimum hennar, svo og veita henni hvatningu og stuðning. Heimildir 1. WHO, UNFPA, UNICEF, World Bank. Managing Complications in Pregnancy and Childbirth. WHO/RHR/OO.7, 2000. 2. Elbourne DR, Prendiville WJ, Carroli G, Wood J, McDonald S. Prophylactic use of oxytocin in the third stage of labour. In: Cochrane Library, Issue 3, 2003. Oxford. Update Software. 3. Prendiville WJ, Elbourne D, McDonald S. Active vs. expectant management in the third stage of labour. In: Cochrane Library, Issue 3, 2003. Oxford. Update Software. 4. Joy SD, Sanchez-Ramos L, Kaunitz AM. Misoprostol use during the third stage of labor. Int J Gynecol Obstet 2003:82:143- 152. Óskum öllum Ijósmæðrum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars Rafmagnsveitur ríkisins, Rauðarárstíg 10, Reykjavík Heilbrigðisstofnunin ísafjarðarbæ, Torfnesi, ísafjörður Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga, Spítalastíg I, Hvammstangi Heilbrigðisstofnunin Blönduósi, Flúðabakka 2, Blönduós Heilbrigðisstofnunin Siglufirði, Hvanneyrarbraut 37-39, Siglufjörður Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Eyrarlandsvegi,Akureyri Heilsugæslustöðin áAkureyri, Hafnarstræti 99,Akureyri Ljósmæðrablaðið júní 2005 41

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.