Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 24.FEBRÚAR 2005 Tækni DV • í íþrótta- og útivistavöruverslun- inni Markið Ármúla 40 eru nú frábær tilboð í gangi. Afsláttur af skfða- og brettapökkum er 20-30% og tilvalið fyrir áhugafólk um vetratíþróttir að skoða hvað er íboði. Nánari ___________ upplýsing- armá finnaá heimasíðu verslunarinnar, www.markid.is • í versluninni Lystadún Snæ- land eru ferming- artilboð á mörg- um gerðum ung- lingarúma, verð erffá 27.930 krónum. Verslun- in minnir einnig á úrval sitt af rúmteppum, gjafavöru, heilsukoddum og svo gjafakortin. Af- geiðslutímar verslunarinnar eru mánudaga og föstudaga frá klukkan 10-18 en á laugardögum er opið frá klukkan 11-15. • Á matsölustaðnum KFC er nú veisluvika, það þýðir að 10 bitar, stór skammtur af frönskum og 2 h'trar af Pepsi kosta nú 1999 krónur. Mat- sölustaðir KFC eru staðsettir í Reyk- javík, Hafnarfirði, Kópavogi og Mos- fellsbæ og er opið aila daga frá klukk- an 11:00-22:00. Netást gengur vel upp Einstaklingar sem leita ástarinnar á net- inu eiga næstum þvi örugglega aO geta fundið maka að sinu skapi samkvæmt nýrri rannsókn. Þegar fólk hefur komiö á traustu sambandi meO tölvupósti og hist einu sinni eru 94% likur á aö þaO hittist afur. AO meðaltali endast samböndin þó ekki nema i sjö mánuöi en næstum 20% endast i ár eöa meira. Karlmenn sem nota stefnumótaþjónustur á netinu virðast vera tilbúnari en aörir til aO gefa afsér og er þetta mikilvægur þáttur, samkvæmt fólkinu sem fram- kvæmdi rannsóknina viö Háskólann í Bath á Englandi. Þaö var fréttavefur Sky sem greindi frá þessu. 229 tóku þátti könnunni.„Þessi sambönd virðast ganga alveg eins vel og venjuleg sambönd," sagöi yfirmaður rannsóknarinnar. Innkallanir hjá XBox Microsoft hefur innkallað um 14 milljón rafmagnssnurur fyrir XBox- leikjatölvuna vegna eldhættu. Taliö er aö 30 atvik hafi átt sér staö þar sem bilun i slíkum snúrum hafi vald- við köllum inn þrátt fyr- irað fá atvik hafi átt sér staö," segir talsmaöur Microsoft um málið. Fyr- irtækið staöhæfir aö aöeins ein af hverjum tiu þúsund tölvum hafi bil- að afþessum sökum og bilanirnar hafi veriö afar smávægilegar. Þeir sem lenda í þessu eiga aö kynna sér hvaö gera skuli á heimasiðu XBox. Símartil sparnaðar Læknar i Sviss ræddu fyrir stuttu hve mikilvægir myndsimar geta veriö tilaö greina sjúkdóma og meiösl hjá fólki á færlægum stööum. Á Háskólasjúkra- húsinu I Genfvar tilkynnt um 52 sjúk- linga sem voru á svo fjarlægum stöö- um aö læknar uröu aö láta nægja aö sjúkdómsgreina manneskjuna með þvl einu aö skoöa myndir sem sendar voru I gegnum fullkominn myndavélaslma. Þvi leggja nú svissneskir læknar til aö þessi tækni veröi notuð I meira mæli I læknisfræöilegum tilgangi, þaö myndi gæti bæöi sparaö sjúklingum og lækn- um sporin, sem gæti svo oröiö til sparn- aöarl heilbrigöiskerfinu. Þeir feðgar Halldór Sigurðsson flugvirki og vélaverkfræðingur og sonur hans Vilhjálmur Ingi Halldórsson handboltakappi eru sagðir vera að útbúa flottasta bíl landsins. Við kíktum í heimsókn til þessara fjölhæfu feðga. : . m Fjolhaefir feðgar Þeim feögum Vilhjálmi og Halldóri virðist flest til lista lagt. Verðandi undrabíll Hérséstblllinn eins og hann var í byrjun og sýnishorn afþeim breytingum sem eiga sérstað. „Þegar við keyptum bílinn fyrir tveimur árum síðan var búið að breyta honum fyrir 44 tommu dekk. Við lentum svo í smáóhappi með hann og einnig var ég ósáttur við aksturseiginleika hans. Loks varð úr að við ákváðum að fara út í þessar framkvæmdir. Löngunin til þess að fara út í svona vitleysu, þó ekki væri nema einu sinni á ævinni, hafði blundað lengi í undirmeðvitund- inni,“ segir Halldór Sigurðsson, flug- virki og vélaverkfræðingur, og hlær. Undanfarna mánuði hafa þeir feðgar, Halldór og sonur hans Vil- hjálmur Ingi Halldórsson, einn efni- legasti nýhði íslenska hand- boltalandsliðsins, verið að gera upp jeppa á svo umfangsmikinn og vand- aðan hátt að aðrir bílaáhugamenn segjast verða grænir af öfund við að sjá framkvæmdimar. Miklar breytingar þrátt fyrir tafir Breytingamar á bílnum hófust svo fyrir alvöm síðasthðinn nóvember. Halldór segir þó að einhverjar tafir hafi orðið á. Til að mynda hafi Vil- hjálmur verið upptekinn í Túnis með handboltaliðinu auk þess sem hann sjálfur skelltí sér á skíði til Austurríkis í febrúar. Meðal þeirra miklu breytinga sem þeir feðgar hafa gert á bílnum má nefna að þeir settu sterkari hásingar undir bílinn auk þess sem þeir gerðu talsverðar breytingar á þeim til að auka og breyta aksturseiginleikum bílsins. En Halldór segir að það sé nauðsynlegt til að geta keyrt á jafn stórum dekkjum og þeir viija, án þess að eiga í einhverjum vandræðum með það. Þar fyrir utan hafa þeir pantað ýmis tól og tæki að utan tii að bíllinn verðu sem bestur. Fjölskyldan með bílaáhuga Ætíunin er að nota bílinn til ferða- laga en Halldór segist hafa afar gam- an að því sýsla í vélum og tækjum. Stór hlutí af þessu sé samt auðvitað að það er gaman að vinna að þessu með syninum. Áhugi fjölskyldunnar á hvers kyns íþróttum sé mikill og áður en Halldór helltí sér út í jeppa- breytingamar með syninu hafði hann mikið stundað gókart með dóttur sinni en hún sé nú við nám á erlendri grundu og því hafi verið tilvalið að byrja á nýjum og spenn- andi verkefnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.