Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 23
DV Lífið FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 23 Will Smith Lentií Strákunum í London. Strákarnir hrella Will Smith Það verður sannkölluð veisla i Strákun- um, þætti Sveppa, Audda og Péturs Jó- hanns, á Stöð 2 næstu daga. Þeir félagar voru staddir i London á mánudaginn og tóku viðtöl við stjörnurnar úr gaman- myndinni Hitch sem hef- ur verið að gera allt vit- laust í Bandarikjunum undanfarnar tvær helgar. Myndin verður frumsýnd hérá landi fimmtudaginn 3. mars. Strákarnir spjölluðu við Kevin James úr King ofQueens, leikkonuna glæsilegu Evu Mendes, Amber Valleta sem er ekki mikið Strákarnir Tóku Will Smith í gegn i London síðri og leikstjórann Andy Tennant. Sagan segir að þeir hafi svosótt blaðamannafund hjá sjálfum Will Smith, sem leikur aðalhlutverkið i myndinni, og vakið þar óskipta athygli við- staddra. Byrjað verður að sýna frá ferð þeirra i þættin- um i kvöld klukkan 20 á Stöð 2. Það fylgir svo sögunni að erlendar sjónvarpsstöðvar hafi sóst eftir þvi að fá að sýna upptökur strák- anna frá blaðamanna- fundinum svo eitt- hvað hlýtur forvitni- legt að hafa gerst. Tónleikar • Raschér-kvartett- inn kemur fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói klukkan 19.30 og flytur með hljómsveitinni konsert fyrir fjóra saxófóna eftir Philip Glass. Einnig flytur hljómsveitin verk eftir Jónas Tómasson og Wolfgang Ama- deus Mozart. Stjómandi er Bem- harðurWilkinsson. • ídraumumvarþettahelst, tónlistar- og ljóðadagskrá þeirra Tómasar R. Einarssonar og Einars Más Guðmundssonar, verður flutt í Ketflhúsinu á Akureyri klukkan 21. • Pönk-elektró-djasstríöið Grams heldur tónleika á Djassklúbbnum Múlanum, Hótel Borg klukkan 21. Tríóið skipa Jóel Pálsson, Davíð Þór Jónsson og Helgi Svavar Helgason. Lífið eftir vinnu Einungis fjórir kepp- endur eru eftir 1 Idol Stjörnuleit sem held- ur áfram annað kvöld. Þema kvöldsins er New York og gestadóm- ari er enginn annar en skapari Nylon-flokksins. Hann hyggst taka dómgæsluna föstum tökum. • DúettinnVegagerðinleUcurljúf- lingslög af ýmsu tagi á Póstbamum frá 22 tfl miðnættis. • ShadowPar- ade, Kalli Tender- foot og Lára koma ffam á Grand rokki klukkan 22. Leikhús* Leikritið Gijótharðir eftir Hávar Siguijónsson verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu klukkan 20. • Hið lifandi leikhús frumsýnir leikritið American Diplomacy í Borgarleikhúsinu klukkan 20. Verk- ið er samið og leikstýrt af Þorleifi EmiAmarssyni. Opnanir. BrynlúldurGuð- mundsdóttir opnar myndlistarsýn- ingu í Sparisjóðnum á Garðatorgi klukkan 17. Sýningin heitir „koma og fara". Á sýningunni em 23 olíu- málverk. Fundir og fyrirlestrar • Þorsteinn Gylfason flytur fýrirlestur um tákn á Heimspelátorgi Háskól- ans áAkureyri, sem haldið verður í stofu L101 í Sólborg við Norðurslóð klukkan 16.30. • HallgerðurGísladóttirflyturer- indið Þorrinn og Góan, matur og matarvenjur, á þjóðlegri dagskrá í Bókasafin Kópavogs klukkan 17.15. Kvæðamenn frá kvæðamannafélag- inu Iðunni kveða rímur. Ennhrifin af Jack Renee Zellweger segir að hún hafi ekki enn jafnað sig á skilnaðinum viðJack White. Óskarsverðlauna- leikkonan, sem hætti með söngvara The White Stripes íseptember eftir tveggja ára samband, segir að hún sé enn að átta sig á að sambandið sé á enda.„Ég hefekki verið með öðrum manni síðan i september þvi mérþykir enn vænt um hann og sú tilfinning breytist ekki k þótt samband okkar k sé öðruvisi," segir , hin3SáraRenee. Hún upplýsti að hún værihætt meðJack i des- emberen hafði skömmu áður tal- aðumástsina á honum:„Jacker einstökmann- eskja. Hann er svo hæfileikarikur og klár." síðar. Þau gátu lítið verið saman enda nóg að gera hjá bæði Nirvana og Hole, en þau töluðu því meira saman í síma. Fleiri en bassaleikari Nirvana óttuðust að Court- ney hefði slæm áhrif á Kurt, en þó gat enginn lokað aug- unum fyrir því að hann var miklu hamingjusamari að sjá þegar hún var á svæðinu. Sjálf lýstu þau sambandinu sem „ást-haturs"-sambandi. Saman eignuðust þau dótturina Frances Bean. Þótt opinber dánarorsök Kurts sé sjálfs- morð vilja margir meina að eigin- konan hafi beinlínis keypt mann tfl að kála honum. Það er ósannað, en Courtney er þó þannig að ýmsu er hægt að trúa uppá hana. í dag eru liðin 13 ár síðan Kurt Cobain giftist Courtney Love. Athöfnin var látlaus og fór ffarn á kletti við ströndina á Hawaii. Kurt var rómantísk- ur og klæddur í náttföt en Courtney var í gömlurn kjól sem leikkonan Frances Farm- er hafði átt. Kurt vildi ekki neina stórathöfn því hann var hræddur um að hann færi að ITann fór að grenja. Vinir og ættingj- ar voru viðstaddir, en þó ekki bassa- leikari Nirvana því hann vissi sem var að Courtney var heróínsjúklingur og hann óttaðist að hún hefði vond áhrif á Kurt. Skötuhjúin höfðu fyrst hist á Nirvanatónleikum 1989 en ást- in fór ekki að blómstra fýrr en 2 ámm „Mér finnst kannski þeir gesta- dómarar sem hafa komið verið full- mjúkhentir. Auðvitað er smekksatriði hversu langt menn ganga. En ég væri varla kallaður tfl nema menn hefðu áhuga á mínu áliti. En ég hlakka bara til. Þetta er mikill heiður, að vera gestadómari," segir Einar Bárðarson umboðsmaður Islands sem hefur ver- ið fenginn tfl að vera gestadómari á föstudagskvöld í Idol-söngvara- keppninni. Þema kvöldsins verður New York og ættu þau Heiða, Davfð Smári, Hild- ur Vala og Lísa að mæta innblásin tfl leiks eftir velheppnaða stórborgarferð tfl „Stóra eplisins". Einar hefur ekki séð lagalistann en telur reyndar að big-bandþema síð- asta þáttar hefði átt ákaflega vel við New York - Big Band Frankie Boy Sinatra. ,Ætli þetta verði þá ekki lög sem listamenn ffá New York hafa tekið, Simon og Garfunkel og einhverjir slík- ir." Nú eru aðeins eftir fjórir keppend- ur og gera má ráð fyrir að hver um sig syngi meira en bara eitt lag. „Já, nú er þetta komið á alvar- legt stig. Bara fjórir eftir og eins gott að fá almennflegan mannskap í dómgæsluna," segir Einar hlæj- | andi þegar blaðamaður furðar sig á því að Einar skuli ekki hafa verið kallaður tfl miklu fyrr sem sá mikli reynslubolti á sviði dægurtónlistar og hann hefur verið undanfarin ár sem lagahöfundur, umboðsmaður, plöggari og skapari Nylon-flokksins. En ætlar þú þá að sitja grimmari í gestadómarasætinu en maður hefur áðurséð? „Nei, kannski ekki beinlínis. Ég æda bara að setja þetta í samhengi við fleira heldur en bara það að standa þama uppi á sviði og halda lagi. Farsæll tónlistarferill í hinum harða heimi sem við lifum í snýst um margt annað en það eitt og sér. Hitt er svo annað mál að mér finnst allir þeir keppendur sem eru þama uppi á sviði búnir að leggja mikið á sig og eiga allir skilið að vera þama." Einar, sem fylgst hefur grannt með keppninni, hefur ákveðnar hug- myndir p „ ». um það hver mun fara með sigur af hólmi. Á reyndar í nokkmm erfiðleikum með að gera upp á milli tveggja þeirra en vill að svo stöddu máli ekki gefa neitt uppi um hvaða söngvari það er sem hann telur að muni standa uppi sem sigurvegari. jakob@dv.is I Og þá voru eftir ~ fiórir... Einarætlar - j að beina beina sjón- um öðru en því H einu að standa d svið- II inu og halda lagi. Og *v \Þaðættuþeirkepp- □ endur sem eftir eru að taFo til athugunar vilji Kfljl þeir ganga íaugu & J gestadómarans. Einar Bárðarson Furðulegt má heita afhverju hann hef- ur ekki verið kallaður til en hann ætlar að láta til sfn taka I gestadómgæslunni. Stjörnuspá Engilbert Jensen poppari er 64 ára í dag. „Manninum er ráðlagt að hvíla sig og hlusta betur á líkama sinn sem mun fyrr en síðar láta hann vita að komið er að því að hann gefi stundum , eftir og hugi enn betur að leigin áhugamálum og ■ ekki síður heilsunni. Líf hans einkennist af hraða sem er af hinu góða ef hann gefur sér tima fyrir i þarfir," segir í stjörnuspá hans. Engilbert Jensen W Vatnsberinn i2ð./an.-/s.few V\ ----------------------------------- Þér er ráðlagt að nota einstæða hæfileika þína þar sem þér er unnt að skapa þér hvaðeina sem þú vilt, kæri vatnsberi. Þú munt fyrr en síðar komast að raun um að þú þarft ekki að hafa mikið fyrir því að uppfylla langanir þínar. H Fískamir (19. febr.-20.mars) Þú ættir að vita að þú þarft ekki að fara þá leið sem þú hefur valið. Þú get- ur umbreytt karma þínu í reynslu sem þú kýst sjálf/ur að ganga í gegnum. Þú ert minnt/ur á að þú getur unnið með orku þinni markvisst og nýtt hana (orkuna) sem virðist fara forgörðum hjá þér. Ef þú finnur fýrir þreytu ættir þú að hvíla þig. Hrúturinn (2l.mars-19.aprll) Ekki leyfa þér að hugsa neikvætt um náungann og eyddu orðinu afbrýði- semi endanlega úr orðaforða þínum (á við félaga eða maka). Tilfinningin sem um ræðir virkar neikvætt á þig ef þú tilheyrir stjörnu hrútsins. Ekki gleyma því sem hjarta þitt og hugur þrá að takast á við. T Ö NaUtÍð (20. april-20. mal) Lukkustjarna þín fylgir þér. Þú munt bráðlega kynnast manneskju sem fær þig til að endurskoða áherslur þínar sem og tilfinningar. Styrkur þinn er mikill á þessum árstíma. Tvíburarnir (21. mal-21.júní) Stundum áttu það til að gefa kunningjum og vinum óskiptan tíma þinn án þess að huga að sjálfinu. Hættu því. ^ Krabb'm (22.júni-22.júii) Þér ferst verk sem tengist þér ( starfi/námi vel úr hendi. Hér birtist lang- tímaverk framundan hjá þér. D Ljóniðpj .júll-22.ágúst) Vinur þinn eða vinkona vill þér vel með ráðum sínum. Þú verður leidd/ur í allan sannleikann hvernig best er að dansa við framtíðina. Bfddu róleg/ur eftir svari við spurningu þinni. Svarið mun koma til þín sem tilfinning. En hafðu hugfast að þessi umtalaða tilfinning kann að vera veikustaföllumtilfinningum þínum. Meyjan (23. ágúst-22. sept.) Meyjan tengist farsæld hér. Þú munt jafnvel standa frammi fýrir smá- vægilegum hindrunum þegarfram líða stundir en með mikilli vinnu, heilindum og aga mun þó allt ganga vel. Þú býrð yfir hugrekki sem kemur sér vel fyrir þig dag- ana framundan. Q Vogin (23.sept.-23.okt.) ““ Njóttu einhvers hluta dagsins með þeim sem þú elskar. Þú ert vissulega að gera þitt besta og orkusvið jarðar mun uppfýlla óskir þínar fýrr en síðar. TH, Sporðdrekinn p4.otr.-2u*.) Ef þú þjáist af sektarkennd, ótta eða einhverju öðru, þá á það sér rætur ( persónuleika þínum, kæri sporðdreki. Smáatriði sem tengjast atburðum síðustu daga móta framtíð þína. Allt skiptir máli, hafðu það hugfast út febrúarmánuð. Þú ert að ganga inn í nýjan kafla sem færir þér dýpri skilning á hamingjunni sem þú átt svo innilega skilið að upplifa. Bogmaðurinnr22.n*.-2f.<fes.) Ef þú ert fædd/ur undir stjörnu bogmanns ertu minnt/ur á að gefa þér tíma til þess að upplifa samverustundir með þinum nánustu. Ef þú hefur ekki fundið fyrir þeirri þörf að huga að þeim sem þú elskar, þá ættir þú að leitast við að finna hana í hjarta þínu og byrja jafnvel að huga aðeins betur að eigin tilfinningum. Steingeitin (22.des.-19.jan.) Ræktaðu hæfileika þína ef þú vilt ná sjáanlegum árangri sem fýrst. í framtíð þinni veit á gott og þér mun ber- ast hjálp í einhverri mynd næstu daga. z SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.