Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1999, Qupperneq 17

Freyr - 15.04.1999, Qupperneq 17
Blaðra 115 á Túnsbergi í Hruna- mannahreppi með 133 stig. Þetta er ung kýr undan Skó 90025 og Lóu 64 sem stendur einnig mjög ofar- lega á þessum lista nú. Blaðra 115 hefur verið mjög afurðamikil kýr og er í hópi afurðahæstu kúa á land- inu árið 1998. Ekki hefur enn feng- ist undan henni nautkálfur til und- aneldis, en hálfbróðir hennar, und- an Lóu 64, er á Uppeldisstöðinni. Þijár kýr eru með 131 stig en þær Kóróna 130 á Berustöðum í Asa- hreppi og Flekka 922 á Efri-Brunná í Saurbæ hafa báðar hækkað um tvö stig ffá siðasta ári en báðar þessar kýr eru áður vel þekktar sem af- rekskýr til afurða og hafa komið við sögu hér ffamar í þessari grein. Undan Kórónu hefur Kóri 97023 verið í notkun sem ungnaut á Nautastöðinni nýverið. Þriðja kýrin er Steypa 223 á Syðri-Bægisá í Öxnadal. Þetta er feikilega efnileg ung kýr undan Þræði 86013. Þá er Góðanótt 165 á Vorsabæ í Austur- Landeyjum með 130 stig. Þetta er gríðarlega efnileg ung kýr undan Daða 87003 en móðir hennar, Nótt 104, var einnig mjög öflug kýr, ein af eldri dætrum Andvara 87014. Undan þessari ungu kú komu tveir nautkálfar þegar hún bar öðru sinni síðastliðið haust og eru þeir báðir á Uppeldisstöðinni. Þama em dæmi um það, sem þarf að gerast miklu meira á næstu ámm, að undan allra álitlegustu kúnum verði annar kálf- ur þeirra undan nautsfeðmm og þannig fáist strax naut til notkunar undan þeim. Ljóst er að á nautsmæðraskránni em nokkrir systrahópar mjög stórir og mikil ástæða til að veita bestu kúnum í þessum hópum mikla athygli. Þetta em að sjálfsögðu dæt- ur nautsfeðra síðari ára sem fengið hafa stóra dætrahópa sína í fram- leiðslu. Langstærsti hópurinn er eins og vænta má dætur Andvara 87014 en þær em 232 í þessum hópi. Margar af þessum kúm em feikilega álitlegar og verða nauts- mæður á næstu ámm. Að vísu grisj- ast þessi systrahópur verulega vegna þess hve margar þeirra hafa takmarkað efnamagn í mjólk. Hins vegar em þetta kostakýr gagnvart mörgum fleiri eiginleikum. Suðri 84023 á þama 163 dætur. Dætur hans er þegar margar að fínna sem mæður þeirra nauta sem em í notk- un á Nautastöðinni eða í uppeldi á Uppeldisstöðinni og verða áhrif þeirra þannig mikil. I þennan kúa- hóp verður áfram mikið leitað. Þetta em griðarlegar afkastakýr, en aðeins breytilegar í öðmm eigin- leikum og það sem ef til vill er út á allmargar þeirra að setja er að þetta em ekki nægjanlega öflugar kýr að skrokkbyggingu. Þá eiga bæði Hólmur 81018 og Þráður 86013 þama á skrá 135 dætur hvor. Þetta em dætrahópar sem miklu skiptir að nýtist vel sem nautsmæður á næstu ámm. Hólmsdætumar em margar glæsikýr og meðal þeirra er að finna margar kýr sem liggja miklu hærra með próteinhlutfall mjólkur en aðrar kýr. Það era þess- ar kýr sem nú er feikilega brýnt að nýta sem nautsmæður. Dætur Þráð- ar em ekki eins sterklegar kýr, en þær virðast hafa feikilega mikla kosti um fijósemi og júgurhreysti, auk þess sem efnahlutfoll mjólkur em oft góð. Þá á Daði 87003 120 dætur á skránni. Þetta em einnig mjög efnilegar kýr og margar sem athygli em verðar og standa margar framar Andvaradætmm um efhi i mjólk. Þá em dætur Þistils 84013 108 á skránni en þær era, eins og lesendur þekkja, eldri en hinna nautanna sem hér hefur verið fjall- að um og er því nokkuð farið að fækka. Margar þessara kúa em þeg- ar orðnar nautsmæður og eins og fram kemur á öðmm stað í blaðinu kemur nú til notkunar sem reynd naut hópur af hálfbræðmm þessara kúa sem vænta má að skilji eftir sig stór spor í kúastofni næstu ára. Að siðustu skulu nefhdar dætur Bassa 86021 en af þeim em 92 á skránni. Þó að þessar kýr séu ekki flestar hverjar neinir afreksgripir um mjólkurmagn í samanburði við dætur nautanna sem áður em nefnd þá hafa margar þeirra feikilega hátt próteinhlutfall í mjólk og ákaflega brýnt er að ná þeim eiginleika sterkar inn í ræktunina en verið hef- ur upp á síðkastið. Að síðustu er vemleg ástæða til að vekja athygli eigenda vel ættaðra ungra kúa, sem sýna góða kosti, á að sæða þær með sæði úr nauts- feðmm. Þessar kýr koma til með að ryðjast inn á nautsmæðraskrá í stórum hópum á næsta ári og ákaf- lega mikilvægt að geta nýtt þær strax í ræktunarstarfinu. Hér er al- veg sérstök ástæða til að benda á dætur nauta eins og Svelgs 88001, Óla 88002, Ugga 88004, Flakkara 88015, Holta 88017, Sporðs 88022, Þymis 89001 og Búa 89017. IVlolar Bandarískt hormónakjöt til Evrópu Bandarískt hormónakjöt er á leið inn í stórmarkaði í ESB og Noregi. Framkvæmdanefnd ESB hefur gefist upp í barátt- unni við hormónakjötið. Hún leggur ekki í nýtt stríð eftir „bananastríðið“. ESB hefur í tíu ár neitað að hleypa banda- rísku hormónakjöti inn á markað sinn en hefur á hinn bóginn ekki tekist að sannfæra Alþjóða viðskiptastofnunina um réttmæti bannsins. Sem málamiðlun felist fram- kvæmdastjórnin á innilutning með því skilyrði að kjötið verði sérstaklega merkt, þ.e. sem „bandarískt“ en ekki hormóna- kjöt. Enginn vafí er talinn leika á því að gerðar verða sömu kröfur til Noregs og ESB. (Bondc og Smábruker nr. 5/1999). FREYR 4/99 - 17

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.