Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1999, Qupperneq 29

Freyr - 15.04.1999, Qupperneq 29
hópur af ungum kúm sem margar eru mjög athyglisverðar vegna ytra útlits og virðast fyllilega ætla að standa undir þeim væntingum um afurðir sem fyrra mat hans gaf til- efni til. Afkvæmadómar nauta sem fædd eru áriö 1991 Þegar kemur að nautunum sem fengu afkvæmadóm á síðasta ári skal bent á eftirfarandi: Negri 91002 hækkar fremur í mati um af- urðasemi og einnig um frjósemi og frumutal, en sá eiginleiki er samt veikur hjá honum og þar sem vægi hans í heildareinkunn eykst mest lækkar hún um eitt stig. Hlemmur 91004 hækkar talsvert í mati fyrir mjólkurmagn og einnig fyrir frumutal og heildareinkunn hans hækkar um eitt stig. Hljómur 91012 hækkar einnig í mati um afurðir, en hins vegar lækkar enn dómur hans bæði um frjósemi og frumutölu, sem þó var neikvæður fyrir, þannig að heildareinkunn hans lækkar um tvö stig. Búði 91014 lækkar einnig í heildareinkunn um tvö stig en verður samt áfram á nautaspjaldi vegna þess að hann er kominn með jákvæðan dóm um próteinhlutfall í mjólk. Gyrðir 91016 hækkar verulega í mati um mjólkurmagn og er með 107 i heildareinkunn, þannig að rétt þykir að bjóða upp á almenna notk- un hans og bætist hann því að þessu sinni á nautaspjald, en vísast að öðru leyti til umfjöllunar um dætur hans í grein um afkvæmarannsókn- ir í Frey á síðasta ári. Skjöldur 91022 lækkar nokkuð í mati um mjólkurmagn, en hækkar í mati um frjósemi dætra, en heildareinkunn hans lækkar um þrjú stig, að tals- verðum hluta vegna hins mjög lága mats sem hann hefur um frumtölu. Blandon 91023 lækkar það mikið í mati að ekki þótti ástæða til að bjóða hann frekar til nota sem reynt naut. Þá lækkar Skutur 91026 um sex stig í heildareinkunn, að hluta vegna talsverðrar lækkunar í mati um afurðasemi dætra, þar sem hann stendur samt með fimahátt mat, hins vegar lækkar enn mat um frjó- semi dætra og mat hans um frumu- tölu er einnig lágt. Krossi 91032 lækkar í heildareinkunn um tvö stig og er það vegna mjög slaks mats um frumutölu sem því miður hefur enn lækkað, en hins vegar hækkar mat hans um afurðasemi dætra. Það naut sem mest styrkir stöðu sína á milli ára úr hópi nauta í þessum ár- gangi er Bætir 91034. Hann hækkar í heildareinkunn um fjögur stig. Fyrir afurðir hækkar mat hans nokkuð. Það sem samt er allra at- hyglisverðast er að mat hans um frumutölu hækkar umtalsvert og þar er hann nú kominn með eitt allra hæsta mat allra nauta eða 125. Nautgriparœktartöflur s ritinu „Nautgriparæktin“ voru margháttaðar töflur varðandi ræktun nautgripa sem ekki er að finna í þessu blaði. Hliðstæðar töflur standa mönnum til boða nú í sérstakri útgáfu, gegn vægu gjaldi. Sú útgáfa verður væntanlega tilbúin í maí nk. Þeir sem óska eftir að kaupa „Nautgripa- ræktartöflur“ geta pantað ritlinginn með því að hringja til Bændasamtakanna eða fylla út meðfylgj- andi pöntunarseðil og senda hann í pósti eða í bréfsíma. Eg óska eftir að kaupa „Nautgriparæktartöflur“ sem áður birtust í ritinu „Nautgriparæktin“ Nafn _____________ Kennitala_ Heimili Póstnúmer_______ Póstumdæmi Viðtakandi: Bændasamtök íslands Bændahöllinni v/Hagatorg Pósthólf 7080 127 Reykjavík Sími: 563 0300 Bréfsími: 562 3058 FREYR 4/99 - 29

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.