Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 10

Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 10
Mynd 3. Dæmigert runmgshus, onnur hus eru yfirleitt ekki a sauðfjarbuum. flutt út með miklum útflutnings- bótum. Afleiðingin varð meðal annars sú að verð á kindakjöti í Mið-Austurlöndum féll úr 70 þús. íkr./tonn í 28 þús. íkr./tonn. Enn- fremur varð þeim tíðrætt um vemd- artoll Bandaríkjamanna á lamba- kjöt, sem settur var til þriggja ára, en auk þess veittu stjómvöld nýjan styrk til sauðfjárbænda sem nam 8,7 milljörðum kr., en í Bandaríkj- unum eru um 6 millj. sauðfjár. Kjötmat er ekki lengur lögbundið í Nýja-Sjálandi (afnumið 1998), en Meat NZ og kjötiðnaðurinn starf- rækja „kjötmatsráð“, sem viðheld- ur kjötmatsreglum, og langflest fyrirtækin halda áfram kjötmati eft- ir þeim reglum. Skipulag útflutnings Svo sem fram er komið em það einstök fyrirtæki í kjötiðnaði sem annast útflutning allra kjötafurða. Það er ekkert heildarskipulag að öðm leyti en því að Meat NZ stýrir nýtingu á kvótum. Fram kom að til skamms tíma hafi undirboð á er- lendum mörkuðum verið viðvarandi vandamál, en nú sé kominn á friður að þessu leyti og fyrirtækin gæti sín. Samkeppni er hörð milli þeirra um viðskipti við bændur og að mati viðmælenda er „tryggð“ bænda við einstök fyrirtæki ekki það mikil að þeir færi ekki viðskipti sín þangað sem hagstæðast er á hverjum tíma. Þó em margir bændur sem eiga í (Ljósm. Halla Eygló Sveinsdóttir). þessum fyrirtækjum og skipta öðm fremur við sín fyrirtæki. Ráðgjöf og hagtölusöfnun Meat NZ starfrækir ásamt ullar- ráðinu (Wool Board) ráðgjafarþjón- ustu (Economic Service), sem veitir rekstrarráðgjöf og safnar hagtölum. Rúmlega 20 ráðunautar starfa á landsvísu og vinna m.a. þannig að skipuleggja umræðuhópa bænda með 20-25 rnanns í hverjum hópi. Þessir hópar hittast á 4-6 vikna fresti og bera saman bækur sínar. Fram kom að bændumir væm fúsir til að opna bækur sínar hver fyrir öðmm og miðla af reynslu sinni. Annar liður í starfseminni er að velja eins konar „þróunarbú" (target farms), sem eru dreifð um landið (alls 24 sauðtjái- og nautakjötsfram- leiðslubú). Samningar em gerðir við þessa bændur og unnin áætlun til nokkurra ára fyrir hvert bú þar sem markmið eru sett um ákveðinn árangur eða úrbætur. (Hliðstætt fyrirkomulag er einnig í mjólkur- framleiðslu á vegum Dairy Board). Bændumir skuldbinda sig til að opna reikninga sína og þama em reglulega haldnir opnir dagar þar sem bændum úr nágrannabyggð er boðið og farið er yfir árangurinn, að hverju er stefnt og hvemig til hefur tekist. Allir bændur eru bókhaldsskyldir og hagtölusöfnun byggist á því að fylgst er nákvæmlega með rekstrar- miðurstöðum á 545 búum (monitor farms) árlega, þ.e. 3,3% af sauð- fjár- og nautabúum. Búin eru valin eftir tilviljun, þó þannig að dreif- ingin sé hlutfallslega jöfn m.t.t. bústærðar. Árlega er skipt út 15% búanna og ný valin í staðinn til að endurspegla þróun í greininni en forðast þó tilviljunarkenndar sveifl- ur. Hvert bú er heimsótt árlega og auk þess safnað upplýsingum um búfjárfjölda, frjósemi og innlegg á viðeigandi tímum. Að meðaltali fara tveir dagar í heimsóknir og skýrslu fyrir hvert bú, en við þetta vinna 13 manns, þar af átta, sem fara milli búa. Lokaorð Það leikur enginn vafi á að Nýsjá- lendingar standa ákaflega framar- lega í öllu er viðkemur landbúnaði enda landkostir sérlega vel til þess fallnir. Hvað sauðfjárræktina varðar er ljóst að þeir em að ná sér upp úr þeim mikla öldudal sem landbúnað- urinn fór í er styrkjum var hætt um miðjan níunda áratuginn. í dag er lögð aukin áhersla á fijósemi fjárins (er þó ekki mikil enn) og kjötfram- leiðslu en dregið hefur úr mikilvægi ullarinnar. Eins og við ffamleiðslu mjólkur er reynt að halda kostnaði niðri eins og mögulegt er og vinnu- hagræðing skipar háan sess hjá ný- sjálenska sauðfjárbóndanum. í raun var aðdáunarvert að fylgjast með notkun þeirra á fjárhundum þar sem einn maður stjómaði allt að 6-7 hundum í einu. Nýsjálenskur landbúnaður er ákaflega ólíkur því sem gengur og gerist hérlendis enda veðurfar gjör- ólíkt. Hins vegar er hugsunarháttur bænda, hvar sem er í heiminum, ávallt keimlíkur og eftir á hyggja er æði margt sem læra má af andfætl- ingum vorum. Kostnaðarvitund, af- köst og nýting vinnuafls, landnýt- ing og bústjóm, notkun verktaka og aðfanga, vinnuhagræðing. Þetta hugsar nýsjálenski bóndinn stöðugt um enda hefur hann ekki fast í hendi hvað hann fær fyrir vömna - hann veit hins vegar að það kostar sitt að framleiða hana! 10 - f R€VR 6-7/2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.