Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 15

Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 15
4. mynd. Kjarnfóðurgjöf í hringlaga trog. (Frumhöfundur að mynd er ókunnur, en Jón Trausti Steingrímsson staðfærði hana). 8,3%. Af þessum 1000 kr/kind, sem við gáfum okkur að væri mis- munur á stofnkostnaði gjafagrindar og garða, þá er þessi greiðslubyrði, eða árlegur útgjaldaauki, því 83 kr. á kind að meðaltali á ári, skv. þum- alfingur-reiknireglum. A 600 kinda búi eru það 49.800 kr. á ári. Áður höfðum við sagt að það væru 400 tímar á ári sem spöruðust við hey- gjafir, miðað við að nota gjafa- grindur í stað garða. Með því að deila 49.800 krónum niður á 400 tíma fáum við út töluna 125 kr., sem er þá það tímakaup sem menn þurfa að hafa á þeim tíma sem sparast til að mæta þeim kostnaði sem er við vinnuhagræðinguna. Hagkvæmnin ætti því að vera augljós fyrir þá sem á annað borð geta nýtt hinn sparaða tíma til einhverrar verðmætasköpunar. Brynning, kjarnfóðurgjöf o.fl. Brynning er einn af fáum vinnu- liðum á fjárbúinu sem má gera nán- ast alveg sjálfvirkan með tiltölu- lega litlum tilkostnaði. Mismun- andi lausnir eru í boði, s.s. ýmsar gerðir brynningarskála, og rör eða rennur úr plasti, steini eða jámi sem vatnsyfirborði er haldið jöfnu í með flotholti (eins og í klósettkassa). Um þessar lausnir þarf ekki að fjöl- yrða. Vinnan við brynn-ingu, þar sem engin slík tækni er notuð held- ur látið renna með slöngu í dalla hér og þar í húsunum, reyndist skv. vinnumælingum Grétars Einars- sonar (1976) um 3 mín/dag/100 kindur, sem þýðir þá um 18 mín. dag á 600 kinda búi eða 60 klst. á ári m.v. 200 daga innistöðu. Þá er eftir að gera ráð fyrir að sé engin sérstök tækni notuð við brynningu má gera ráð fyrir að brynning á sauðburði taki 1-2 klst. á dag á meðalbúi (Grétar Einarsson 1978). Því má vafalítið gera ráð fyrir að á 600 kinda búi geti vinnuspamaður- inn við það að hafa brynningu al- gerlega sjálfvirka numið um 100 klst. á ári. Tæknivæðing á þessu sviði má því kosta eitthvað. I fjárhúsum, þar sem hefðbundnir garðar eru, þá er kjarnfóður yfir- leitt gefið í þá. Þar sem eru gjafagrindur gengur þetta auð- vitað ekki. Þetta hafa flestir leyst með því að smíða rennur úr timbri sem festar eru utan á stíumilli- gerðir og/eða veggi. Þetta er til- tölulega einfalt, en helsti ann- markinn er sá að oft vill verða troðningur og ekki mjög þægilegt fyrir fjármann- inn að sinna verki sínu ef hann þarf að fara niður í stíuna til að gefa kjamfóðrið. Þetta er þó engin frá- gangssök í ljósi þess hve kjarnfóð- urgjöf er orðin lítil hjá sauðfé og bundin við stuttan tíma. Þægilegra væri þó að gefa kjamfóðrið ofan frá, sem má hugsa sér ef einhvers konar loftbrú væri höfð yflr stíun- um. Ekki er endilega víst að best sé að gefa kjamfóðrið í rennur, pláss- nýting væri t.d. betri með því að gefa það í hringlaga trog. Þetta er nokkuð sem þarf að athuga nánar, en skiptir e.t.v. ekki neinum sköp- um varðandi vinnumagn á sauðfjár- búum. Vinna við sauðburð Vinnuálagið á sauðburði er án nokkurs vafa einn af allra stærstu flöskuhálsunum varðandi mögu- lega stærð sauðfjárbúa. Ekki er síð- ur mikilvægt að hafa í huga að minnkað vinnuálag á sauðburði við ýmis föst verk eykur þann tíma sem er til ráðstöfunar til eftirlits og að- hlynningar áa og lamba, sem getur haft bein áhrif í þá átt að minnka lambavanhöld. Einnig er verðmæt- ur sá spamaður á vinnu við sauð- burð sem leiðir til þess að fyrr er hægt að vinna önnur vorverk, s.s. áburðardreifingu. í vinnurannsóknum Grétars Ein- arssonar (1978) kom í ljós að vinna við sauðfé í maímánuði var allt frá 0,5 til 4,1 klst/kind (meðaltal 1,22 klst/kind). Breytileikinn er sem sagt afar mikill. Vinna á kind skv. þessari úttekt minnkaði heldur eftir því sem búin voru stærri, en jókst eftir því sem frjósemi ánna var meiri. Nákvæmar vinnumælingar á tveimur stórum búum, þar sem að- staða var tiltölulega góð, sýndu að vinna við fóðrun og brynningu var um fjórðungur vinnunnar. Næstum því jafn stór hluti tímans, eða rúm 22%, fór í flutninga á fénu innan húss og utan. Tæp 30% vinnunnar voru við ýmiss konar umönnun fjárins, s.s. burðarhjálp, burðareft- irlit, lyfjagjöf, sjúkraumönnun, merkingar og skráningu, að venja lömb undir, mjólka ær og gefa af pela. Þessir liðir eru dæmi um vinnu sem margborgar sig að gefa sér nægan tíma í þó svo að öll hag- ræðing, er gerir þá vinnu auðveld- ari, sé að sjálfsögðu af hinu góða. Á búi, þar sem vinnuaðstaða var lakari en á þeim tveimur sem hér var um rætt, fór um 9% tímans í að setja upp stíur fyrir lambféð og 11-20% í brynningu. Hvort tveggja eru þættir sem á sumum búum þarf ekki að sinna á sauðburði, þ.e. þar sem sjálfbrynning er og stíur upp- settar áður en sauðburður hefst. Ásamt vinnunni við fóðrun, sem FR6VR 6-7/2001 - 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.