Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2002, Page 6

Freyr - 01.11.2002, Page 6
kýr ekkert skapgóðar. Tveir syn- ir mínir fóru til Noregs og starfa þar sem afleysingamenn á kúa- búum vestanfjalls, í Sogn- og Fjarðafylki. Þeir eru ekkert sér- staklega hrifnir af þessum kúm. Melajarðvegur er þá hér hag- stœðari til rœktunar en mýrarn- ar? Já, í heildina litið, einkum á óþurrkasumrum. Sl. vor var hins vegar mjög þurrt og melatúnin skrælnuðu, en mýratúnin stóðu sig betur. | 6 - Freyr 9/2002 Melur í Hraunhreppi. Ég lít eftir skapgerð og mjalta- eiginleikum og svo skiptir pró- tein í mjólkinni máli. Nautakost- urinn á Nautastöðinni á Hvann- eyri breytist hins vegar svo ört að maður festir sig ekki við neitt eitt uppáhaldsnaut. Hvaða skoðun hefur þú á inn- flutningi á norskum kúm? Ég er þar mikið á báðum átt- um. Mér fínnst hins vegar athygl- isvert að mestöll þjóðin virðist hafa skoðun á þessu mali. Ég er reyndar ekkert viss um að þessar norsku kýr séu endilega besta kyn sem við gætum fengið, þó að ugglaust megi fá einhverja eiginleika lfá þeim sem bæta okkar kyn. Hins vegar eru þessar Hvernig var rœktuninni háttað þegarþið bræður jluttuð að Mel? Þorkell: Túnið á Mel mun þá hafa verið um 11-12 hektarar, helmingurinn gamalt tún kringum bæinn en auk þess á mýri sem búið var að grafa og þurrka. Fyrsta árið okkar tókum við fyrir til ræktunar 9 ha stykki á mel hér við bæinn, þar þyrfti lítið að und- irbúa landið annað en að tína burt grjót. Síðan fórum við að rækta tún á mýrlendi. Það er dýrari ræktun, mýramar em áburðarffekar á fos- fór og það þarf að hreinsa skurði og endurrækta túnin á nokkurra ára fresti. Hins vegar er betra að rækta mýramar á Staðarhrauni en á Mel. Mýrarjarðvegurinn er þar ekki eins þykkur og undir er sandur sem leiðir vatnið betur burt. Guðbrandur á Staðarhrauni við rofabarð sem verið er að græða upp. I baksýn Grettisbæli, þar sem sagan segir að Grettir Ásmundarson hafi búið um skeið, og Fagraskógarfjall. Þú stundar kornrækt, Þorkell? Já, ég hef verið með kom í ein sex ár. Þetta hófst hér þannig að það var haldinn hér fundur á veg- um Búnaðarsambandsins. Jóna- tan Hermannsson hjá RALA kom og hann var svo skemmtilegur og hvetjandi að menn smituðust af honum. Það var nú líka þannig að um það leyti stóð allt eitthvað svo

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.