Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 90

Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 90
88 Peter Singer byrjaði ekki á því að kynna til sögunnar siðferðilega hlutlausa lýsingu á því hvernig fólk tekur siðferðilegar ákvarðanir þá hefur það engin áhrif á réttmæti niðurstöðu minnar hvernig fólk breytir í raun og veru. Niðurstöðu mína leiðir af þeirri megin- reglu sem ég setti fram áður. Ef þessi meginregla verður ekki hrakin, eða hægt sé að sýna fram á að rökin séu ósönn, þá held ég að niðurstaðan standi óhögguð, sama hversu einkennileg hún virðist vera. Engu að síður gæti verið áhugavert að velta þvi fyrir sér hvers vegna samfélag okkar og flest önnur samfélög álykta á annan hátt en ég hef lagt til að þau ættu að gera. J.O. Urmson stingur upp á því í vel þekktri ritgerð að skylduboð, sem segir okkur hvað við ættum að gera, óh'kt því sem gott væri að gera en ckki rangt að gera ekki, hafi þau áhrif að koma í veg fyrir hegðun sem er ólíðandi eigi menn að geta búið saman í samfélagi.3 Þetta kann að útskýra uppruna greinarmunarins á skyldu- verkum og góðverkum og að hann skuli enn vera við lýði. Siðferðileg viðhorf mótast af þörfum samfélagsins og samfélagið þarfnast fólks sem mun fara eftir þeim reglum sem gera lífið í því þolanlegt. Frá sjónarhóli tiltekins samfélags er mikilvægt að koma í veg fyrir að reglur sem banna morð, þjófnað og fleira séu brotnar. Hins vegar er með öllu ónauðsynlegt að hjálpa fólki sem býr utan manns eigin samfélags. Ef þetta er útskýring á almennum greinarmuni okkar á að gera skyldu okkar og að gera eitthvað sem er umfram skyldu okkar, þá er þetta á hinn bóginn ekki rétt- læting á honum. Hið siðferðilega sjónarhorn krefst þess af okkur að við h'tum lengra en til hagsmuna okkar eigin samfélags. Hér áður fyrr, líkt og ég hef nú þegar minnst á, kann að vera að þetta hafi ekki verið æskilegt. En nú er þetta afar æskilegt. Frá siðferðilegu sjónarhorni hlýtur það að koma í veg fyrir hungursneyð milljóna manna sem ekki búa í samfélagi okkar að teljast vera að minnsta kosti eins aðkallandi og að viðhalda eignarréttinum í samfélagi okkar. Sumir heimspekingar, meðal annars Sidgwick og Urmson, hafa talið að við- teknar siðferðishugmyndir okkar þurfi að vera einfaldar svo að þær séu ekki hafnar um of yfir skilning hins almenna borgara, því annars hætti menn í stórum stíl að lifa samkvæmt þessum hugmyndum. Þetta hefur nokkurn veginn í for með sér að ef við segjum fólki að það eigi ekki að myrða og að það eigi að gefa allt sem það þarf ekki nauðsynlega á að halda til hjálparstarfs, þá mun það hvorki myrða né gefa peninga til hjálparstarfs. En ef við hins vegar segjum því að það eigi ekki að myrða og að það sé gott að gefa til hjálparstofnana en þó ekki rangt að láta það ógert, þá mun það að minnsta kosti ekki myrða. Vandamálið sem hér er við eiga er eftirfarandi: Hvar eigum við að draga h'nuna á milli þess sem við þurfum að gera og þess sem er gott að gera en sem við þurfum samt sem áður ekki að gera til þess að fá eins góða niðurstöðu og við getum? Þetta virðist vera empírísk spurning en samt sem áður er hún afar snúin. Ein andmæli gegn þess konar rökum sem Sidg- wick og Urmson setja fram eru að þau taki ekki nægilega mikið tillit til þeirra afleiðinga sem siðferðisviðmið geta haft á ákvarðanir okkar. I samfélagi þar sem 3 J.O. Urmson,„Saints and Heroes“,í Essaysin MoralPhi/osophy, ritstjóri Abraham I. Melden (Seattle og London, 1958), s. 214. Um tengt en nokkuð frábrugðið sjónarmið sjá einnig Henry Sidgwick, The Methods of Ethics, yán útg. (London, 1907), s. 220-221,492-493.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.