Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 93

Hugur - 01.06.2009, Blaðsíða 93
Hungursneyd,velmegun og siðferði 91 arinnar“ ástæða þess að þeir gefa ekkert og það virðist heldur ekki leiða til neinna pólitískra aðgerða af hálfu stjórnarinnar. Önnur betri ástæða fyrir því að gefa ekki fé til fólks sem býr við hungursneyð er sú að þar til við finnum árangursríka aðferð til að stýra fólksfjölgun sé slík aðstoð einungis til þess falhn að seinka því að menn verði hungurmorða. Ef við björgum flóttamönnunum í Bengal núna þá muni aðrir, hugsanlega börn þessara flóttamanna, þurfa að glíma við hungursneyð innan nokkurra ára. Þessu til stuðn- ings má vitna í vel þekktar staðreyndir um fóllöfjöldasprenginguna og þá tiltölu- lega takmörkuðu möguleika sem verið hafa fyrir hendi til að auka heimsfram- leiðsluna. Þetta atriði, líkt og hið fyrra, er röksemd gegn því að lina þær þjáningar sem eiga sér stað núna vegna trúar á það sem gæti gerst í framtíðinni; það er óh'kt fyrra atriðinu að því leyti að hægt er að færa mjög góðar sannanir til stuðnings þessari trú um framtíðina. Eg mun ekki þalla um þær sannanir hér. Ég er sammála því að jörðin getur ekki endalaust brauðfætt mannfjölda sem vex með sama hraða og hann gerir nú. Þetta er að sjálfsögðu vandamál fyrir hvern þann sem telur mikil- vægt að koma í veg fyrir hungursneyðir. En hér líkt og áður gæti maður fallist á röksemdafærsluna án þess að komast að þeirri niðurstöðu að það leysi mann und- an þeirri skyldu að bregðast við til að koma í veg fyrir hungursneyðir. Niðurstaðan sem ætti að draga af þessu er sú að besta leiðin til að koma í veg fyrir hungurs- neyðir til lengri tíma litið sé að hafa hemil á fólksfjölgun. Þá myndi það leiða af þeirri niðurstöðu sem komist var að hér á undan að maður ætti að gera allt sem í valdi manns stendur til að stuðla að því að fólksfjölgun verði takmörkuð (nema að maður teldi að allar aðferðir við fólksfjöldastjórnun væru rangar í sjálfu sér, eða hefðu tiltölulega slæmar afleiðingar í för með sér). Þar sem til eru stofnanir sem vinna sérstaklega að fólksfjöldastjórnun myndi maður frekar styðja þær en hefð- bundnari aðferðir við að koma í veg fyrir hungursneyðir. Þriðja atriðið sem leiðir af áðurnefndri niðurstöðu snertir þá spurningu hversu mikið við ættum að láta af hendi rakna. Einn möguleiki sem nú þegar hefúr verið nefndur er að við ættum að gefa af fé okkar allt þar til við komumst á stig jaðar- nytja, það er að segja, það stig þar sem ég myndi, með frekari fjárgjöfúm, valda sjálfúm mér og mínum eins miklum þjáningum og ég kæmi í veg fyrir með fjár- gjöfinni fram að því. I þessu fælist auðvitað að maður myndi setja sjálfan sig í nánast sömu stöðu og flóttamaður frá Bengal. Munum eftir því að hér á undan setti ég bæði fram stranga og hófsama útgáfú af þeirri meginreglu að við ættum að koma í veg fyrir slæma atburði. Stranga útgáfan, sem krafðist þess af okkur að við kæmum í veg fyrir slæma atburði nema við værum þar með að fórna einhverju sem væri álíka siðferðilega mikilvægt, virðist krefjast þess af okkur að við förum niður á stig jaðarnytja. Ég ætti einnig að taka það fram að mér virðist sem stranga útgáfan sé hin rétta. Ég stakk upp á hófsamari útgáfúnni - að við ættum að koma í veg fyrir slæma atburði allt þar til við þyrftum að fórna einhverju sem væri sið- ferðilega mikilvægt - til þess eins að sýna fram á að jafnvel þótt við fylgdum aðeins þessari óumdeilanlegu meginreglu þyrfti að koma til veigamikil breyting á því hvernig við högum lífi okkar. Það kann að vera að það leiði ekki af hófsamari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.